4.500 manna samfélag án hjúkrunarheimilis
Greinar

Suðurnesjabær er í dag um 4.500 manna samfélag og hefur vaxið hratt á undanförnum árum. Hér býr fólk á öllum aldri, fjölskyldur setjast hér að og samfélagið heldur áfram að styrkjast. En þrátt fyrir þessa þróun er eitt stórt gat í grunnþjónustu sveitarfélagsins. Í Suðurnesjabæ er ekkert hjúkrunarheimili. Þetta er staða sem við íbúar teljum að ekki sé hægt að sætta sig við til framtíðar.
Þegar horft er til fjölmennustu sveitarfélaga landsins verður staða Suðurnesjabæjar sérstaklega áberandi. Suðurnesjabær er með rúmlega 4.500 íbúa og er 15. fjölmennasta sveitarfélag landsins. Af 20 fjölmennustu sveitarfélögunum eru 18 með hjúkrunarheimili eða hjúkrunarrými. Aðeins tvö þeirra eru án slíkrar þjónustu, Suðurnesjabær og Sveitarfélagið Ölfus, sem er töluvert fámennara með 2.907 íbúa.
Þetta sýnir með einföldum hætti hversu sérstök staða Suðurnesjabæjar er. Samfélag með í kringum 4.500 íbúa, og eitt af 15 fjölmennustu sveitarfélögum landsins, hefur enn ekkert hjúkrunarheimili. Það hlýtur því að vera eðlileg og sanngjörn krafa að uppbygging hjúkrunarheimilis í Suðurnesjabæ verði tekin föstum tökum. Þegar íbúar okkar þurfa á sólarhringsþjónustu og hjúkrun að halda þurfa þeir að flytja úr sínu samfélagi, frá fjölskyldu, vinum og því umhverfi sem þeir þekkja. Fyrir marga þýðir það að síðustu æviárin eru ekki í heimabyggð.
Sókn og sigrar samvinnuhugsjónarinnar
Við fulltrúar B-listans lögðum nýverið fram tillögu í bæjarstjórn Suðurnesjabæjar um að bæjarstjóra verði falið að hefja þegar í stað viðræður við ríkisvaldið um uppbyggingu hjúkrunarheimilis í Suðurnesjabæ. Tillaga okkar var samþykkt samhljóða af öllum bæjarfulltrúum og það er mikið gleðiefni. Markmiðið er einfalt: að koma þessu verkefni af stað. Sveitarfélagið þarf fyrst og fremst að vera tilbúið að leggja verkefninu til hentuga lóð og vinna með ríkisvaldinu að undirbúningi þess.
Við sem búum á landsbyggðinni þekkjum að það gerist ekkert af sjálfu sér. Við eigum sjálf að hefja samtalið, sýna frumkvæði og leggja fram skýran vilja sveitarfélagsins til þess að hér rísi hjúkrunarheimili.
Hentug staðsetning skiptir máli
Við uppbyggingu hjúkrunarheimilis þarf að horfa til framtíðar. Húsnæðið þarf að vera vel staðsett og aðgengilegt. Bæjarstjórn Suðurnesjabæjar hefur nýverið sameinast um metnaðarfulla framtíðarsýn. Tillögurnar gera ráð fyrir að ráðhús Suðurnesjabæjar verði sameinað á einum stað, í núverandi ráðhúsi í Garði. Samhliða því verði lagður grunnur að lífsgæðakjarna fyrir eldri borgara í Sandgerði, á því svæði þar sem hluti stjórnsýslu sveitarfélagsins er nú til húsa. Hugmyndin er að skapa þar lifandi og öflugt umhverfi þar sem þjónusta, félagsstarf og fjölbreytt úrræði fyrir eldri íbúa geta þróast og dafnað. Með sameiningu stjórnsýslunnar skapast jafnframt tækifæri til hagræðingar og skilvirkari nýtingar húsnæðis og fjármuna.
Við Vörðuna og Miðnestorg er þegar gert ráð fyrir lóð fyrir hjúkrunarheimili í skipulagi, sem gæti hentað vel undir slíka starfsemi. Þar væri hægt að skapa umhverfi þar sem hjúkrunarheimili yrði hluti af samfélaginu en ekki einangruð stofnun. Endanleg staðsetning þarf auðvitað að byggjast á faglegu mati og skipulagsvinnu, en mikilvægast er að sveitarfélagið sé tilbúið með raunhæfa kosti þegar samtal við ríkið hefst.
Byggðastefna sjáist í verki hjá ríkisstjórninni
Þetta snýst líka um byggðastefnu. Ef við viljum byggja upp öflugt sveitarfélag þar sem fólk getur búið alla ævi, þá þarf þjónustan að fylgja íbúafjöldanum og þróun samfélagsins.
Núverandi ríkisstjórn hefur boðað stórátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila á næstu árum. Í því ljósi tel ég bæði eðlilegt og réttlætanlegt að ríkið hefji markvisst samtal við þau sveitarfélög þar sem hjúkrunarheimili eða hjúkrunarrými skortir og meti hvar þörfin er brýnust. Þar hlýtur Suðurnesjabær að koma sterklega til álita. Hér búa um 4.500 manns í ört vaxandi sveitarfélagi, en samt er hér ekkert hjúkrunarheimili. Ef boðað átak á að ná til landsins alls verður að horfa til samfélaga þar sem slík grunnþjónusta er ekki þegar fyrir hendi. Fólk sem hefur búið hér, unnið hér, alið hér upp börnin sín og tekið þátt í að byggja upp samfélagið á að eiga þess kost að dvelja hér áfram þegar aldurinn færist yfir.
Tími kominn til að sækja fram
Uppbygging hjúkrunarheimilis gerist ekki á einni nóttu. Frá fyrstu viðræðum þar til nýtt heimili tekur til starfa geta liðið mörg ár, en nú þarf ríkistjórnin að sýna vilja sinn í verki.
Það er einmitt þess vegna sem við verðum að byrja núna. Suðurnesjabær er ört vaxandi sveitarfélag. Samhliða fjölgun íbúa mun eldri íbúum fjölga og þörfin fyrir þjónustu aukast. Við eigum að horfa fram á veginn og undirbúa samfélagið fyrir þá þróun. Og sækja fast á ríkisvaldið.
Markmið okkar er skýrt: að íbúar Suðurnesjabæjar geti lifað og notið þjónustu í sinni heimabyggð. Það er verkefni sem vert er að berjast fyrir.
Höfundur er oddviti Framsóknar og óháðra í Suðurnesjabæ.
Anton Kristinn Guðmundsson
Greinin birtist fyrst í Morgunblaðinu 23. september 2026



