Sigurjón Jónsson ráðinn framkvæmdastjóri Framsóknar

Sigurjón Jónsson hefur verið ráðinn tímabundið í starf framkvæmdastjóra Framsóknarflokksins og þingflokks Framsóknar. Sigurjón tekur við starfinu af Helga Héðinssyni sem gegnt hefur starfinu undanfarin þrjú ár. Sigurjón er með BSc próf í markaðsfræðum frá Auburn Montgomery háskólanum í Alabama og hefur víðtæka reynslu af kynningarmálum og pólitísku starfi. 

Sigurjón var aðstoðarmaður Willums Þórs Þórssonar, heilbrigðisráðherra á árunum 2022-2025. Áður var Sigurjón starfsmaður þingflokks Framsóknar 2020-2022 og sinnti ýmsum verkefnum á sviði kynningamála. Sigurjón kemur úr grasrót Framsóknar og hefur sinnt fjölmörgum trúnaðarstörfum fyrir flokkinn undanfarna tvo áratugi. 

Sigurjón er í sambúð með Tinnu Rún Davíðsdóttir Hemstock, verslunareiganda, og eiga þau saman tvo syni. 

Ný forysta Framsóknar býður Sigurjón velkominn til starfa. Sigurjón hefur nú þegar hafið störf.

Ný forysta Framsóknar vill einnig þakka Helga Héðinssyni kærlega fyrir sín störf. Helgi hefur starfað sem framkvæmdastjóri Framsóknar síðastliðin þrjú ár og sinnt því starfi af miklum metnaði.