Þetta snýst um samfélagið

Greinar

Gengið er til sveitarstjórnarkosninga í dag. Framsókn býður fram á 26 stöðum vítt og breitt um landið. Í framboði er þróttmikið og öflugt hugsjónarfólk, sem vill leggja sitt af mörkum til að bæta samfélagið. Ég er stolt af frambjóðendum okkar. Þeir þekkja samfélögin sín, hlusta á fólkið og vinna af heilindum fyrir fjölskyldur, atvinnulíf og framtíð barnanna okkar.

Ákvarðanir teknar sem snerta daglegt líf

Sveitarstjórnarstigið er það stjórnvald sem stendur fólki næst. Þar eru teknar ákvarðanir sem snerta daglegt líf okkar allra eins og í leik- og grunnskólum, velferðarþjónustu, íþrótta- og tómstundastarfi og skipulagsmálum. Það skiptir máli hverjir sitja við borðið þegar forgangsröðun er ákveðin. Góð sveitarstjórn þarf bæði hjarta og hyggindi. Einnig þarf vilja til að auka lífsgæði og kjark til að reka sveitarfélagið af fjárhagslegri ábyrgð. Við getum ekki lofað öllu fyrir alla, en við getum lofað að fara vel með sameiginlega fjármuni okkar, horfa til framtíðar og setja fólk í fyrsta sæti.

Lausnir, samvinna, traust

Í huga framsóknarfólks eiga stjórnmál að snúast um lausnir, samvinnu og traust. Framsókn vill styrkja samfélögin með aukinni fjárfestingu í fólki og innviðum. Með slíka stefnu vaxa samfélögin og velferð íbúanna.

Í yfir heila öld hefur framsóknarfólk um land allt unnið að því að efla samfélögin með samvinnu. Við tökum höndum saman, horfum bjartsýn fram á veginn og nýtum þetta tækifæri til að láta gott af okkur leiða.

Nýtum kosningaréttinn

Ég vil hvetja okkur öll til að nýta kosningaréttinn. Lýðræðið er hornsteinn velsældar samfélaga. Ísland er eitt elsta lýðræðisríki veraldar og sú arfleifð kallar á þátttöku okkar allra. Með atkvæði okkar mótum við það samfélag sem við viljum búa í. Því hvet ég ykkur til að setja x við Framsókn til heilla fyrir íslenskt samfélag.

Til frambjóðenda Framsóknar segi ég: haldið áfram af krafti, gleði og trú á verkefnið. Hver einasta heimsókn, samtal og hugmynd skiptir máli.


Höfundur er formaður Framsóknar.

Lilja Dögg Alfreðsdóttir

Greinin birtist í Morgunblaðinu 16. maí 2026