Tveir sérfræðingahópar skipaðir um skuldavanda heimila

Forsætisráðherra hefur skipað eftirtalda aðila í sérfræðingahópa um skuldavanda heimila. Eiga þeir að skila af sér í nóvember 2013 og fyrir lok árs 2013 skv. þingsályktunartillögu sem samþykkt var á sumarþingi. Sérfræðingahópur um höfuðstólslækkun verðtryggðra húsnæðislána og kosti og galla leiðréttingasjóðs:

  • Dr. Sigurður Hannesson, stærðfræðingur, formaður.

  • Dr. Arnar Bjarnason, hagfræðingur

  • Einar Hugi Bjarnason, hrl.

  • Ingibjörg Ólöf Vilhjálmsdóttir, hdl.

  • Lilja Alfreðsdóttir, alþjóðahagfræðingur

  • Sigrún Ólafsdóttir, alþjóðaviðskiptafræðingur í forsætisráðuneyti

  • Sigurður Guðmundsson, skipulagsfræðingur í fjármála- og efnahagsráðuneyti

Sérfræðingahópur um afnám verðtryggingar af neytendalánum:

  • Ingibjörg Ingvadóttir, hdl, formaður

  • Hafdís Ólafsdóttir, lögfræðingur í fjármála- og efnahagsráðuneyti

  • Iða Brá Benediktsdóttir, viðskiptafræðingur

  • Sigrún Ólafsdóttir, alþjóðaviðskiptafræðingur í forsætisráðuneyti

  • Tómas Brynjólfsson, hagfræðingur í fjármála- og efnahagsráðuneyti

  • Valdimar Ármann, hagfræðingur/fjármálaverkfræðingur

  • Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness