19. kjördæmaþing KFR
Dagsetning
Tími
Staðsetning
Borgartún 22, Reykjavík
Sveitarfélag
Reykjavík
Setja í dagatal

Stjórn Kjördæmasambands framsóknarmanna í Reykjavík boðar til 19. Kjördæmaþings Framsóknarmanna í Reykjavík mánudaginn 13. apríl í Borgartúni 22, kl. 20:00.
Framboð til formanns, stjórnar, kjörstjórnar og miðstjórnar skulu berast til starfsnefndar á netfangið reykjavik@framsokn.is.
Framboðsfrestur rennur út þremur sólarhringum fyrir boðaðan þingtíma.
Drög að dagskrá:
1. Kosning starfsmanna þingsins.
2. Skýrsla stjórnar og ársreikningur 2025.
3. Ávörp gesta.
4. Lagabreytingar.
5. Kosningar:
a. Formaður KFR.
b. 6 fulltrúar í stjórn KFR og 2 til vara.
c. Formaður kjörstjórnar.
d. 6 fulltrúar í kjörstjórn og 3 til vara.
e. Fulltrúar KFR í miðstjórn skv. lögum flokksins.
f. 2 skoðunarmenn reikninga og 1 til vara.
6. Önnur mál.
Formenn aðildarfélaga eru hvattir til þess að huga að kjörbréfum fyrir þingið og koma til sem fyrst á netfangið reykjavik@framsokn.is.
Á kjördæmaþingi eiga sæti með atkvæðisrétti:
• Einn fulltrúi fyrir hverja byrjaða 10 félagsmenn hvers aðildarfélags í kjördæmunum.
• Aðal- og varamenn í stjórn kjördæmasambandsins.
• Aðalmenn kjördæmanna í miðstjórn Framsóknarflokksins.
• Heiðursfélagar í aðildarfélögum í kjördæmunum 70 ára og eldri.
Þá eiga allir félagsmenn Framsóknarflokksins í kjördæmunum rétt á að sitja kjördæmaþing með málfrelsi og tillögurétt.
Hlökkum til að sjá sem flest!


