Framsóknargusa

Dagsetning

13. mars 2026
13. mars 2026

Tími

17:50

Staðsetning

Skarfaklettur

Sveitarfélag

Reykjavík


Framsóknar-gusa!

Föstudagurinn, 13. mars
Klukkan 17:50
Skarfaklettur (þar sem ferjan út í Viðey er).

Verð 5000 kr. á mann (kostnaðarverð).

Takmarkað pláss.

Skráningin er opin öllum!
https://forms.gle/4tmNSjXRt2iX8o667


Hvað er þetta?
80 mínútna gufugusa með þremur lotum inni í gufunni þar sem gusuður dekrar við hópinn með dásamlegum ilmolíum, viðeigandi tónlist og blævængjum. Á milli lota er boðið upp á snakk og vatn ásamt kæling í sjónum, snjónum nú eða bara í íslenska svalanum.

Mæting:
Mikilvægt er að mæta tímanlega (mæting 17:50) svo að gusan geti hafist á réttum tíma.

Hvað á að taka með?
Mikilvægt að koma með tvö handklæði, eitt til að sitja á inni í gufunni (svokallað svitaklæði) og annað til að þurrka sér eftir á.

Mikilvægt að drekka vel og gott að taka með sér vatnsbrúsa fulla af fersku vatni.

Svo er ljúft að hafa slopp til að smeygja sér í á milli og á eftir.

Gott er að koma í sundfötum innan undir fötunum, annars er smá skiptiaðstaða í vagninum.

Eftir gusuna:
Er planið að fara í sturtu/pottinn í Laugardalslaug og hittast svo á Kaffi Laugalæk í drykk. Öll velkomin í þann hluta.


- Ung Framsókn í Reykjavík