Fagmennska sem reyndist fjarstýring

Greinar


Landsvirkjun er ein mikilvægasta eign þjóðarinnar. Í sex áratugi hefur fyrirtækið verið byggt upp af framsýni og þekkingu. Það hefur skapað verðmæti, styrkt samkeppnishæfni atvinnulífsins og verið ein af undirstöðum efnahagslegs sjálfstæðis þjóðarinnar. Landsvirkjun er meira en orkufyrirtæki. Hún er þjóðareign sem okkur ber að varðveita og efla fyrir komandi kynslóðir.

Jóhannes Geir Sigurgeirsson, fyrrverandi stjórnarformaður Landsvirkjunar, rifjaði upp í Morgunblaðinu í gær hvernig stórframkvæmdir fyrri áratuga hefðu „lagt grunninn að þeim arðgreiðslum sem síðar komu“. Hann minnti jafnframt á að „enginn einstaklingur er stærri en verkefnið“. Ákvarðanir um orkuauðlindir þjóðarinnar eru teknar til áratuga og verða að byggjast á langtímahagsmunum hennar en ekki pólitískum skammtímasjónarmiðum.

Fyrirtækið hefur byggt upp sterkan efnahag og skilað þjóðinni verulegum arðgreiðslum. Arðgreiðslur til ríkisins námu um 120 milljörðum króna á árunum 2020-2025. Þetta er afrakstur áratuga uppbyggingar og ábyrgrar stjórnunar.

Þess vegna eru deilur um stjórnarhætti Landsvirkjunar alvarlegar. Árið 2025 breytti fjármála- og efnahagsráðherra fyrirkomulagi við val stjórnar. Valnefnd gerir nú tillögur en ráðherra fer með endanlegt val. Breytingin var kynnt í nafni fagmennsku. En fagmennska verður ekki tryggð með skipunarferli einu saman. Hún ræðst af sjálfstæði stjórnarmanna, gagnsæi og skýrum mörkum milli eiganda, stjórnar og framkvæmdastjórnar. Starfslok Harðar Arnarsonar eftir 17 ára forystu og þær upplýsingar sem síðan hafa komið fram vekja spurningar um þessi mörk. Ólíkar lýsingar á atburðarásinni kalla á að málið verði upplýst til fulls. Alþingi og almenningur eiga rétt á skýrum svörum. Því þarf að taka samskipti ráðuneytis og stjórnar til óháðrar skoðunar og birta gögn eftir því sem lög leyfa. Jafnframt þarf að endurmeta aðkomu Alþingis að stjórnarháttum þessarar mikilvægu þjóðareignar.

Orkuauðlindirnar eru ein af undirstöðum sjálfstæðis okkar og arður af nýtingu þeirra á að renna til þjóðarinnar. Jafnframt verður Landsvirkjun að njóta sjálfstæðis í rekstri. Opinbert eignarhald má aldrei verða réttlæting fyrir pólitískri íhlutun. Afstaða Framsóknarflokksins er skýr er viðkemur eignarhaldi á Landsvirkjun. Fyrirtækið á að vera áfram í eigu íslensku þjóðarinnar. Við leggjumst gegn sölu fyrirtækisins, hvort sem er að hluta eða í heild.

Síðustu vikur sýna að hér er meira í húfi en starfslok eins forstjóra. Þetta snýst um traust, ábyrgð og virðingu fyrir eignum þjóðarinnar. Landsvirkjun er ekki fyrirtæki ráðherrans. Hún er fyrirtæki þjóðarinnar. Og þjóðin á rétt á allri sögunni.


Höfundur er formaður Framsóknarflokksins.

Höfundur: Lilja Dögg Alfreðsdóttir

Greinin birtist fyrst í Morgunblaðinu 5. nóvember 2026

Framtíðin ræðst á miðjunni

Framtíðin ræðst á miðjunni

Framtíðin ræðst á miðjunni

Málefnin

Starfið

Framsókn