Framboðslisti Frjálsra með Framsókn á Akranesi samþykktur
Framsóknarfélag Akraness samþykkti á félagsfundi á Akranesi einróma tillögu uppstillingarnefndar að framboðslista Framsóknar, Frjálsir með Framsókn, fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Ingibjörg Pálmadóttir, hjúkrunarfræðingur, fyrrv. ráðherra og alþingsimaður, leiðis listann, í öðru sæti er Jóhannes Karl Guðjónsson, knattspyrnumaður, og Sigrún Inga Guðnadóttir, lögfræðingur, í því þriðja.
Framboðslistinn, Frjálsir með Framsókn, er skipaður eftirtöldum:
Ingibjörg Pálmadóttir, hjúkrunarfræðingur
Jóhannes Karl Guðjónsson, knattspyrnumaður
Sigrún Inga Guðnadóttir, lögfræðingur
Elinbergur Sveinsson, kennari
Karítas Jónsdóttir, B.S.C. í umhverfis-og byggingaverkfræði
Guðmundur Páll Jónsson, forstöðumaður
Anna Þóra Þorgilsdóttir, hjúkrunarfræðingur
Ole Jakob Wolden, húsasmiður
Hlini Baldursson, sölumaður
Sólveig Rún Samúelsdóttir, stúdent og verkakona
Valdimar Ingi Brynjarsson, stúdent og verkamaður
Hilmar Sigvaldason, verkamaður
Drífa Gústafsdóttir, skipulagsfræðingur
Ingi Björn Róbertsson, tónlistarmaður
Maron Kærnested Baldursson, viðskiptafræðingur
Gunnar Hafsteinn Ólafsson, matreiðslumaður
Björg Elva Jónasdóttir, hjúkrunarfræðingur
Guðmundur Hallgrímsson, blikksmiður
Á framboðslistanum eru 7 konur og 11 karlar. Í efstu 10 sætunum er jafnt kynjahlutfall. Í kosningum árið 2010 fékk flokkurinn tvo bæjarfulltrúa kjörna í bæjarstjórn. Mikill einhugur var á fundinum og stefnan sett hátt fyrir vorið.
PS: Ertu á Facebook? Því ekki að verða aðdáandi Framsóknar.



