Framboðslisti Framsóknar í Kópavogi samþykktur
Fulltrúaráð framsóknarfélaganna í Kópavogi samþykkti einróma í gærkvöld tillögu að framboðslista Framsóknarflokksins fyrir sveitarstjórnarkosningar í vor. Efsta sæti listans skipar Birkir Jón Jónsson fyrrverandi alþingismaður, í öðru sæti er Sigurjón Jónsson markaðsfræðingur og í því þriðja Guðrún Jónína Guðjónsdóttir hjúkrunarfræðingur.
Framboðslistinn í heild:
Birkir Jón Jónsson, fv. alþingismaður/MBA
Sigurjón Jónsson, markaðsfræðingur
Guðrún Jónína Guðjónsdóttir, hjúkrunarfr./lífsstílsleiðb.
Kristinn Dagur Gissurarson, viðskiptafræðingur
Ólöf Pálína Úlfarsdóttir, grunnskólakennari
Helga María Hallgrímsdóttir, grunnskólakennari/félagsráðgjafi
Sigurbjörg Björgvinsd., fv. yfirm. öldrunarmála í Kópavogi
Gunnleifur Gunnleifsson, forvarna- og fræðslufulltrúi
Alexander Arnarson, málarameistari
Sigurbjörg Vilmundardóttir, leikskólakennari
Sigmar Ingi Sigurðarson, lögfræðingur
Linda Wessman, konditor/lífsstílsleiðbeinandi
Íris Lind Verudóttir, deildarstjóri/söngkona
Marlena Anna Frydrysiak, viðskiptafræðingur
Kristján Matthíasson, doktor í efnafræði
Björg Baldursdóttir, aðstoðarskólastjóri
Trausti Marel Guðmundsson, nemi
Björg Eyþórsdóttir, hjúkrunarfræðinemi
Einar Baldursson, grunnskólakennari
Hulda Salómonsdóttir, sjúkraliði
Einar Kristján Jónsson, rekstrarstjóri
Willum Þór Þórsson, alþingismaður
Framsóknarmenn fengu einn mann kjörinn í sveitarstjórnarkosningunum 2010, Ómar Stefánsson oddvita flokksins. Hann gaf hins vegar ekki kost á sér að þessu sinni.
PS: Ertu á Facebook? Því ekki að verða aðdáandi Framsóknar.



