Framboðslisti Frjálsra með Framsókn í Hveragerði samþykktur
Framsóknarfélag Hveragerðis samþykkti einróma á félagsfundi tillögu uppstillingarnefndar að framboðslista Framsóknar, Frjálsir með Framsókn, fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar 31. maí 2014. Framboðið skipar fólk sem kemur víða að úr samfélaginu, með fjölbreytta menntun og störf. Garðar Rúnar Árnason, kennari, leiðir listann, í öðru sæti er Daði Steinn Arnarsson, íþrótta- og sundkennari og í því þriðja Sigurbjörg Sara Sveinsdóttir, húsmóðir.
Á meðfylgjandi mynd eru fimm efstu frambjóðendur listans talið frá vinstri: Garðar Rúnar Árnason, Adda María Óttarsdóttir, Ásdís Alda Runólfsdóttir, Sigurbjörg Sara Sveinsdóttir og Daði Steinn Arnarsson.
Listann skipa eftirtaldir:
Garðar Rúnar Árnason, kennari
Daði Steinn Arnarsson, íþrótta- og sundkennari
Sigurbjörg Sara Sveinsdóttir, húsmóðir
Ásdís Alda Runólfsdóttir, flutningafulltrúi
Adda María Óttarsdóttir, háskólanemi
Ágúst Örlaugur Magnússon, leiðbeinandi og knattspyrnuþjálfari
Steinar Rafn Garðarsson, sjúkraflutningamaður og fjallaleiðsögn
Sæbjörg Lára Másdóttir, háskólanemi
Ragnar Ágúst Nathanaelsson, körfuboltamaður og nemi
Ingibjörg Sverrisdóttir, skrifstofumaður
Fanný Björk Ástráðsdóttir, sjúkraliði og þroskaþjálfi
Gísli Garðarsson, eldri borgari og fyrrv. bæjarfulltrúi
Herdís Þórðardóttir, innkaupastjóri
Pálína Agnes Snorradóttir, kennari á eftirlaunum
Listann skipa 8 konur og 6 karlar. Framsóknarflokkurinn bauð ekki fram í sveitarstjórnarkosningunum 2010 en var þá hluti af A-listanum sem fékk tvo fulltrúa kjörna í bæjarstjórn Hvergerðis.
PS: Ertu á Facebook? Því ekki að verða aðdáandi Framsóknar.



