Gegndi um daginn alls fimm ráðherraembættum
Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og umhverfis- og auðlindaráðherra, gegndi um daginn alls fimm ráðherraembættum, því hann bætti við sig embættum forsætisráðherra, dómsmálaráðherra og utanríkisráðherra. En Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra, og Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra voru erlendis á ráðstefnum. Og þá var Hr. Ólafur Ragnar Grímsson, forseti Íslands, einnig staddur erlendis og var því Sigurður Ingi staðgengill forsætisráðherra einnig einn af þremur handhöfum forsetavalds um stundarsakir.
Sigurður Ingi hefur verið áberandi í fjölmiðlum síðustu daga og eru hér að neðan slóðir á ýmis viðtöl við hann sem gott er að deila áfram á flokksmenn og aðra stuðningsmenn flokksins.
eyjan.is - Sigurður Ingi hjólar í Kastljós: „Talið við kartöflubændur, talið um hver hefur ráðið markaðnum þar“ Í bítið - "Kerfið er í endurskoðun", landbúnaðarráðherra ræddi MS málið Kastljós - Vissi ekki um tengsl Ólafs Fréttir RÚV - Flutningi Fiskistofu ekki breytt Sprengisandur - Fór með rangt mál Sprengisandur - Ver ekki samkeppnisbrot
PS: Ertu á Facebook? Því ekki að verða aðdáandi Framsóknar.


