Stjórnmálaályktun miðstjórnar Framsóknar 7.-8. nóvember 2026

Tilkynningar

Ný Framsókn - frá hugsjónum til athafna

Stjórnmálaályktun miðstjórnarfundar Framsóknar · Laugarbakki, 7.–8. nóvember 2026

Miðstjórn Framsóknar krefst tafarlausrar stefnubreytingar í hagstjórn landsins.

Tvö mikilvæg ár hafa glatast í baráttunni við verðbólgu og háa vexti. Ríkisstjórnin má ekki rétta ríkisfjármálin af með því að veikja fjárhagslegt öryggi fjölskyldna í landinu og draga þróttinn úr atvinnulífinu. Jafnvægi byggist á skýrri forgangsröðun, aðhaldi og betri nýtingu opinbers fjár.

Stöðugleiki í þágu heimila og fyrirtækja

Framsókn leggur til að hækkanir kílómetragjalds, krónutölugjalda og kolefnisgjalds verði takmarkaðar við 2,5%. Endurnýja þarf samstarf ríkis, sveitarfélaga og aðila vinnumarkaðarins um aðhald við gjaldskrárhækkanir, húsnæðisuppbyggingu og bætt lífskjör hér á landi. Það er með öllu óboðlegt að fyrirhugaðar skatta- og gjaldahækkanir leggist hlutfallslega þyngst á tekjulægri fjölskyldur landsins. Framsókn skorar á stjórnvöld að birta heildarmat á áhrifum skatta, gjalda og skerðinga eftir tekjum, fjölskyldugerð og búsetu áður en ákvarðanir eru teknar. Heimilissátt Framsóknar er leiðarljós sem mun tryggja mýkri lendingu og áframhaldandi lífsgæðaaukningu hér á landi.

Farsæld barna 

Framsókn leggur til að skattleysismörk hækki um 0,5% umfram verðlag og fjárhæð barnabóta fylgi verðbólgumarkmiði Seðlabanka Íslands. Framsókn hafnar fjársveltisstefnu stjórnvalda gagnvart farsæld barna og krefst þess að ríkið tryggi sveitarfélögum fjármagn til að veita börnum þann stuðning sem nauðsynlegur er. Það er með öllu ótækt og óverjandi að ríkisstjórnin standi ekki við þá samninga sem gerðir hafa verið, ekki síst vegna barna með fjölþættan vanda. Miðstjórn Framsóknar hafnar ófaglegum vinnubrögðum barna- og menntamálaráðherra við innleiðingu námsmats. Miðstjórn hvetur sveitarstjórnir landsins til að standa með kennurum og skólasamfélaginu og hafna innleiðingu sem boðuð var einhliða á þessu skólaári og um leið krefjast þeirrar faglegu nálgunar sem breytingar á námsmati kalla á.

Húsnæðisöryggi

Greiða skal vaxtabætur áfram árið 2027 og halda hlutfalli endurgreiðslu virðisaukaskatts af vinnu við íbúðarhúsnæði í 35%. Framsókn lýsir yfir miklum áhyggjum af kólnandi húsnæðismarkaði og telur mikilvægt að hugmyndir flokksins um endurskipulagningu á húsnæðislánaframboði nái fram að ganga. Einnig þarf að styðja við húsnæðissamvinnufélög til að efla enn frekar framboð af fjölbreyttu húsnæði. Það er stórt hagsmunamál allra landsmanna að vægi verðtryggingar minnki og öllum gefist kostur á að taka óverðtryggð húsnæðislán með föstum vöxtum til langs tíma. 

Við erum ein þjóð, í einu landi

Framsókn leggur höfuðáherslu á að fjárfestingar í samgöngum, orku, menntun og heilbrigðisþjónustu styðji við búsetu og störf um allt land. Virða skal sjálfstjórn sveitarfélaga og láta fjármagn fylgja nýjum skyldum. Styrkja þarf nýsköpun og samkeppni, einfalda rekstur smærri fyrirtækja og tryggja bændum fyrirsjáanleg skilyrði til fjárfestingar og nýliðunar. Innlend matvælaframleiðsla og fæðuöryggi eru órjúfanlegur hluti af þjóðaröryggismálum og grundvöllur fullveldis. Sérstaklega þarf að huga að því að rétta hlut þeirra eldri borgara sem minna mega sín. Miðstjórn Framsóknar skorar á stjórnvöld að endurskoða fyrirhugaðar breytingar á loftbrú. Núverandi fyrirkomulag er mikilvægt jöfnunarúrræði  fyrir íbúa landsbyggðarinnar. Framsókn styður við búsetu landsmanna um land allt. 

Ferðaþjónustan er lykilatvinnugrein

Samanlagðar álögur veikja fjárfestingargetu og ógna heilsársstörfum, einkum hjá smærri fyrirtækjum í ferðaþjónustu á Íslandi. Framsókn leggst gegn aukinni skattheimtu á ferðaþjónustu og vill að virðisaukaskattur á aðgang að baðlónum haldist í 11%. Miðstjórn hafnar svonefndum Bláskógaskatti við Gullfoss, Geysi og Þingvelli.  Fjármögnun náttúruverndar og innviða skal byggjast á meðalhófi og samstarfi við heimafólk.

Þjóðareign og langtímahagsmunir

Landsvirkjun skal áfram vera í eigu þjóðarinnar. Virða ber sjálfstæði fyrirtækisins og tryggja faglega stjórn þess. Miðstjórn krefst gagnsæis um kostnað og árangur opinberra ákvarðana. Verja verður grunnþjónustu, forvarnir og fjárfestingar sem auka framleiðni gegn niðurskurði sem getur haft óafturkræfar afleiðingar fyrir byggðir landsins og lífskjör okkar allra. 

Lífskjör eldra fólks

Það á enginn að þurfa að kvíða því að eiga ekki fyrir nauðsynjum á efri árum. Framsókn vill setja kjör tekjulægstu eldri borgaranna í forgang. Miðstjórn tekur undir tillögu Landssambands eldri borgara um sérstaka mánaðarlega uppbót til þeirra sem minnst hafa. Tryggja þarf að uppbótin skili sér að fullu og leiði ekki til skerðingar á öðrum greiðslum.. Fólkið sem byggði upp samfélagið okkar á að geta treyst því að samfélagið standi með því. 

Ábyrgð og heilindi í stjórnmálum 

Miðstjórn Framsóknar lýsir yfir áhyggjum af dvínandi siðferðisvitund í stjórnarháttum, skorti á ábyrgð og gagnsæi og ítrekuðum frávikum frá kröfum um heilindi, fagmennsku og heiðarleika. Framsókn hafnar vaxandi skautun og stjórnmálamenningu sem elur á ótta, tortryggni og sundrungu. Stjórnmál eiga að byggja brýr, ekki reisa múra. Framsókn stendur fyrir samvinnu, gagnkvæmri virðingu og samfélagi þar sem öll njóta jafnra tækifæra, óháð uppruna, búsetu eða efnahag. 

Framsókn er hreyfiafl framfara á Íslandi og hefur erindi flokksins aldrei verið brýnna. Nýafstaðnar sveitarstjórnarkosningar sýna  glögglega hversu mikill kraftur, kjarkur og dugnaður býr í fulltrúum flokksins og grasrót hans. Framsókn mun alltaf sækja fram, aldrei skorast undan og ávallt standa vörð um lífskjör íslensku þjóðarinnar um land allt. 



Samþykkt á miðstjórnarfundi 8. nóvember 2026 á Laugarbakka í Miðfirði.

Mynd tók Hörður Ragnarsson

Framtíðin ræðst á miðjunni

Framtíðin ræðst á miðjunni

Framtíðin ræðst á miðjunni

Málefnin

Starfið

Framsókn