38. flokksþing Framsóknar

Nú styttist í 38. Flokksþing Framsóknar. Til að tryggja skilvirka framkvæmd þingsins er AFAR MIKILVÆGT að ganga frá forskráningu á þingið.

Sala miða á hátíðarkvöldverð lokar kl. 22:00 á morgun þriðjudaginn 10. febrúar. Athugið að takmarkaður miðafjöldi er í boði. Athugið einnig að bæði þarf að skrá sig á þingið og kaupa miða á kvöldverðinn.

Skráning á þingiðhttps://tix.is/event/20958/38-flokksthing-framsoknar

Miðasala á hátíðarkvöldverðhttps://tix.is/event/20955/hatidarkvoldverdur-a-flokksthingi-framsoknar

Framsókn heldur reglulegt flokksþing eigi sjaldnar en annað hvert ár og skal það að jafnaði haldið fyrri hluta árs. Flokksþing Framsóknarmanna ákveður meginstefnu flokksins í landsmálum, setur flokknum lög og hefur æðsta vald í málefnum hans.

Mikilvægar dagsetningar:

15. janúar – viðmiðunardagur fulltrúatölu aðildarfélaga.
30. janúar – lagabreytingum skal í síðasta lagi á miðnætti skilað inn til flokksskrifstofu.
7. febrúar – kjörbréfum skal í síðasta lagi á hádegi skilað inn til flokksskrifstofu.

Verkefni flokksþings

Á flokksþingi skal kjósa formann Framsóknarflokksins og skal hann jafnframt vera formaður miðstjórnar flokksins. Þá skal á flokksþingi kjósa varaformann, ritara og tvo skoðunarmenn reikninga. Einnig skal kjósa tvo meðstjórnendur í laganefnd og tvo til vara. Ennfremur skal kjósa tvo meðstjórnendur siðanefndar og tvo til vara.

Hvert flokksfélag hefur rétt til að senda einn fulltrúa með atkvæðisrétt á flokksþing fyrir hverja 15 félagsmenn eða brot úr þeirri tölu. Jafnmargir varamenn skulu kjörnir. Fulltrúatala skal miðast við félagatal eins og það liggur fyrir á skrifstofu flokksins 30 dögum fyrir flokksþing. Um fyrirkomulag kosninga fulltrúa fer eftir lögum einstakra aðildarfélaga. Aðildarfélög skulu tilkynna val sitt á fulltrúum á flokksþing til skrifstofu flokksins eigi síðar en viku áður en flokksþing er sett.

Allir félagsmenn í flokknum hafa rétt til að sækja flokksþing og hafa þar málfrelsi og tillögurétt.

Miðstjórnarmenn eiga sæti á flokksþingi með atkvæðisrétti.

Gott að vita:
Gisting:
Drög að dagskrá***:

Laugardagur 14. febrúar 

08:30 – Skráning, afhending þinggagna.
10:00 – Þingsetning.
10:10 – Kosning þingforseta, þingritara, kjörbréfanefndar, kjörstjórnar, samræmingarnefndar og dagskrárnefndar.
10:15 – Skýrsla ritara.
10:30 – Mál lögð fyrir þingið.
10:40 – Nefndastörf hefjast.
12:30 – Hádegishlé.
13:00 – Yfirlitsræða formanns.
13:30 – Almennar umræður.
16:00 – Nefndastörf.
20:00 – Hátíðarkvöldverður.

Sunnudagur 15. febrúar 

08:30 – Skráning og afhending þinggagna.
09:00 – Nefndastörf.
10:30 – Afgreiðsla mála.
12:00 – Hádegishlé.
13:00 – Kosningar: Formaður, varaformaður, ritari, laganefnd, siðanefnd, skoðunarmenn reikninga og löggiltan endurskoðenda.
14:30 – Afgreiðsla mála, framhald.
17:00 – Þingslit. 

*** Með fyrirvara um breytingar.

Málefnaskjöl fyrir flokksþing

Málefnanefnd hefur lokið við að uppfæra stefnu Framsóknar frá síðasta flokksþingi. Nefndin hefur endurraðað ályktununum, umorðað og bætt við nýjum ályktunum. Hóparnir á flokksþinginu munu vera að mestu leiti samsvarandi þingnefndum Alþingis.

  • AMN: Allsherjar- og menntamálanefnd

  • ATV: Atvinnuveganefnd

  • VEL: Velferðarnefnd

  • UMSAM: Umhverfis- og samgöngunefnd

  • STJ: Stjórnskipunarnefnd

  • UTN: Utanríkismálanefnd

  • EHN: Efnahagsnefnd

Í málefnamöppunni er búið að skipta málaflokkunum, innan nefndanna, niður til að gera yfirferð þægilegri. 

Hér má finna málefnamöppuna:

Málefnaskjöl – Google Drive

Við óskum eftir nýjum ályktunum og breytingartillögum frá framsóknarfélögum. Hægt er að senda inn tillögur til miðnættis 10. febrúar.

Málefnatillögur fyrir Flokksþing Framsóknar

FRAMSÓKNARFLOKKURINN