Áframhaldandi stjórnarsamstarf á traustum grunni
Framsóknarflokkur, Sjálfstæðisflokkur og Vinstrihreyfingin - grænt framboð hafa sammælst um áframhaldandi samstarf þar sem eftirfarandi mál verða í öndvegi í ríkisstjórn í öðru ráðuneyti Bjarna Benediktssonar:
Efnahagsmál.
Allt kapp verður lagt á að ná niður verðbólgu og styðja við nýgerða kjarasamninga og koma nýsamþykktum stuðningsaðgerðum stjórnvalda við kjarasamninga til framkvæmdar hið fyrsta. Stöðugleiki í efnahagsmálum, vaxandi velsæld, aukinn kaupmáttur og lækkun verðbólgu og vaxta verða í forgrunni. Ríkisrekstur verður einfaldaður, stofnanir og sjóðir sameinaðir og þjónusta bætt. Áfram verður unnið að bættum kjörum barnafjölskyldna og lágtekjuhópa, m.a. með áframhaldandi úrbótum í húsnæðismálum og endurskoðun örorkulífeyriskerfisins.Innflytjendamál.
Tekið verður utan um málefni innflytjenda í samræmi við heildarsýn stjórnvalda. Dregið verður markvisst úr kostnaði vegna hælisleitendakerfisins/umsækjenda um alþjóðlega vernd og ráðist í gerð nýrra heildarlaga um útlendinga. Lögð verður áhersla á inngildingu innflytjenda í íslenskt samfélag, þ.m.t. í skólum og unnið að nýjum heildarlögum um inngildingu.Orku- og loftslagsmál.
Orkuframleiðsla verður aukin, virkjanaferlið einfaldað og valkostum í grænni orkuframleiðslu fjölgað svo styðja megi við orkuskipti og atvinnuuppbyggingu. Náttúruverndarsjónarmið verða höfð að leiðarljósi við sjálfbæra nýtingu orkuauðlinda. Til að styðja við orkuskipti í samgöngum í þágu loftslagsmála verður m.a. lokið við uppfærslu samgöngusáttmála. Unnið verður að betri nýtingu í raforkukerfinu og skilvirkni aukin í þágu loftslagsaðgerða. Haldið verður áfram með endurskoðun rammaáætlunar.
„Þetta er það skynsamlegasta sem við getum gert, til þess að koma samfélaginu áfram inn í þann stöðugleika sem við þurfum til þess að ná niður verðbólgu og vöxtum. Við ætlum að styðja áfram við þá öflugu verðmætasköpun sem er í landinu og við erum á góðum stað, með öflugan þingmeirihluta og traustan málefnagrunn,“ sagði Sigurður Ingi Jóhannsson, fjármála- og efnahagsráðherra og formaður Framsóknar.
Fjármálaráðuneytið er undir stjórn Framsóknar í fyrsta sinn í 45 ár eða frá því Tómas Árnason gegndi því embætti frá 1. september 1978 til 15. október 1979.
Yfirlit yfir fjármálaráðherra Framsóknarflokksins:
Tómas Árnason frá 1. september 1978 - 15. október 1979
Halldór E. Sigurðsson frá 14. júlí 1971 - 28. ágúst 1974
Eysteinn Jónsson frá 24. júlí 1956 - 23. desember 1958
Eysteinn Jónsson frá 8. september 1954 - 24. júlí 1956
Skúli Guðmundsson frá 14. apríl 1954 - 8. september 1954
Eysteinn Jónsson frá 11. september 1953 - 14. apríl 1954
Eysteinn Jónsson frá 14. mars 1950 - 11. september 1953
Eysteinn Jónsson frá 28. júlí 1934 - 17. apríl 1939
Ásgeir Ásgeirsson frá 3. júní 1932 - 28. júlí 1934
Ásgeir Ásgeirsson frá 20. ágúst 1931 - 3. júní 1932
Tryggvi Þórhallsson frá 20. apríl 1931 - 20. ágúst 1931
Einar Árnason frá 7. mars 1929 - 20. apríl 1931
Tryggvi Þórhallsson frá 8. desember 1928 - 7. mars 1929
Magnús Kristjánsson frá 28. ágúst 1927 - 8. desember 1928
Klemens Jónsson frá 18. apríl 1923 - 22. mars 1924



