Ásmundur Einar leiðir í Norðvesturkjördæmi
Um helgina fór fram tvöfalt kjördæmisþing Framsóknarflokksins á Bifröst í Borgarfirði. Þar var samþykkt að Ásmundur Einar Daðason, fyrrverandi alþingismaður, muni skipa efsta sæti á lista Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi í næstu alþingiskosningum.
Halla Signý Kristjánsdóttir, fjármálastjóri í Bolungarvík, situr í öðru sæti listans og Stefán Vagn Stefánsson, bæjarfulltrúi og yfirlögregluþjónn, á Sauðárkróki, í því þriðja.
Annars er listi Framsóknar í Norðvesturkjördæmi svona:
Ásmundur Einar Daðason, Borgarnesi
Halla Signý Kristjánsdóttir, Bolungarvík
Stefán Vagn Stefánsson, Sauðárkrókur
Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir, Borgarbyggð
Guðveig Anna Eyglóardóttir, Borgarnesi
Lilja Sigurðardóttir, Patreksfjörður
Þorgils Magnússon, Blönduósi
Eydís Bára Jóhannsdóttir, Hvammstanga
Einar Guðmann Örnólfsson, Borgarbyggð
Jón Árnason, Patreksfirði
Heiðrún Sandra Grettisdóttir, Dalabyggð
Gauti Geirsson, Ísafirði
Kristín Erla Guðmundsdóttir, Borgarnesi
Jóhanna María Sigmundsdóttir, Borgarbyggð
Elsa Lára Arnardóttir, Akranes
Elín Sigurðardóttir, Stykkishólmi



