Auglýsing vegna framboða í Norðausturkjördæmi

Kjörstjórn Norðausturkjördæmis auglýsir eftir framboðum á framboðslista Framsóknarflokksins í Norðausturkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar 29. október 2016.

Þeir flokksmenn sem hafa hug á því að taka sæti á framboðslista Framsóknarflokksins í kjördæminu fyrir alþingiskosningarnar skulu senda kjörstjórn skriflega kynningu þar sem frambjóðendur kynna sig og gera grein fyrir helstu baráttumálum auk þess að tilgreina hvaða sætum á lista sóst er eftir. Kynningunni skal fylgja ljósmynd.

Sjá reglur á vef Framsóknar: www.framsokn.is/reglur-um-tvofalt-kjordaemisthing/

Framboðsfrestur er til kl. 12.00 á hádegi föstudaginn 2. september nk.

Framboðum skal skilað á netföngin: brattahlid10@simnet.is og eythor1@simnet.is. Kjörstjórn Norðausturkjördæmis