B-listi Framsóknar og annarra framfarasinna í sameinuðu sveitarfélagi Blönduósbæjar og Húnavatnshrepps
B-listi Framsóknar og annarra framfarasinna kynnti í dag framboð sitt til sveitarstjórnarkosninga í sameinuðu sveitarfélagi Blönduósbæjar og Húnavatnshrepps. Listinn, sem mun sækja um bókstafinn B, var kynntur á opnum fundi hjá Framsóknarfélagi Austur-Húnavatnssýslu sem haldinn var 27. mars í Glaðheimum á Blönduósi.
Fundurinn var vel sóttur og mættu liðlega 50 manns. Þar á meðal Stefán Vagn Stefánsson, alþingismaður, sem ávarpaði fundinn.
Mikil jákvæðni og baráttuhugur kom fram í máli fundarmanna og einhugur er um að vanda til málefnastarfs á næstu vikum. Þau sem listann skipa vilja mjög gjarnan leita sjónarmiða sem flestra í nýju sveitarfélagi.
Þeir sem áhuga hafa á að taka þátt í málefnastarfi, koma sjónarmiðum á framfæri, eða spyrja út í starfið framundan er velkomið að hafa samband í netfangið framsoknogframfarasinnar@gmail.com.
Eftirtaldir skipa B-listann:
Auðunn Steinn Sigurðsson, skrifstofumaður
Elín Aradóttir, framkvæmdastjóri
Grímur Rúnar Lárusson, lögfræðingur
Erla Gunnarsdóttir, ferðamálafræðingur og ferðaþjónustubóndi
Magnús Valur Ómarsson, málarameistari
Elín Ósk Gísladóttir, fótaaðgerðarfræðingur og sjúkraliði
Agnar Logi Eiríksson, rafvirki og sjúkraflutningsmaður
Sara Björk Þorsteinsdóttir, hjúkrunarfræðingur og landbúnaðarfræðingur
Karol Galazyn, verkamaður
Halldór Skagfjörð Jónsson, bóndi og smiður
Finna Birna Finnsdóttir, deildarstjóri/leikskólaleiðbeinandi
Anna Margret Sigurðardóttir, verkefnisstjóri í upplýsingatækni, heimilisfræðikennari og sveitarstjórnarmaður
Magnús Sigurjónsson, bóndi, B.ed í kennslufræðum
Sigþrúður Friðriksdóttir, bóndi
Þorgils Magnússon, byggingatæknifræðingur
Björn Ívar Jónsson, sjómaður
Höskuldur Birkir Erlingsson, aðalvarðstjóri
Valgarður Hilmarsson, fyrrv. sveitarstjóri



