Góð næring er ein af undirstöðum heilsu og vellíðunar. Í hverjum mánuði eru yfir 10 þúsund máltíðir sendar heim frá Reykjavíkurborg og meira en 16 þúsund máltíðir bornar fram í félagsmiðstöðvum borgarinnar. Þótt almennt ríki ánægja með þjónustuna hefur maturinn verið gagnrýndur fyrir að vera of einhæfur. Fólk vill hafa aukið val um hvað það borðar og því er mikilvægt að borgin leiti allra leiða til að verða við þeim óskum. Matarþjónusta borgarinnar þarf að taka betur mið af ólíkum þörfum, smekk og heilsufari þeirra sem nýta sér hana. Nú liggur fyrir velferðarráði tillaga Framsóknar um að fjölga valkostum í matarþjónustu borgarinnar. Lagt er til að velferðarsviði verði falið að útfæra leiðir til að bjóða upp á fjölbreyttari matseðil og aukið val, bæði í heimsendum mat og í hádegismat í félagsmiðstöðvum borgarinnar. Slík nálgun myndi gera þjónustuna bæði notendamiðaðri og nútímalegri.

Aukin ánægja og minni matarsóun

Næringarþarfir og matarvenjur fólks eru ólíkar. Í samtölum sem ég hef átt við borgarbúa sem nýta sér matarþjónustu borgarinnar hefur komið fram að margir vilja hafa meira um það að segja hversu stórir matarskammtar eru og kjósa minna af unnum kjötvörum en meira af fersku grænmeti. Fólk vill einfaldlega heilnæman og næringarríkan mat. Aukið val eykur líkurnar á að maturinn höfði til notenda, sem skilar sér í betri næringu, meiri ánægju og minni matarsóun.

Tækifæri í nýrri tækni

Tæknin skapar ný tækifæri. Matsölustaðir og verslanir bjóða í auknum mæli upp á stafrænar lausnir þar sem fólk getur valið úr fjölbreyttum matseðlum og fengið mat heimsendan. Reykjavíkurborg ætti að nýta slíkar lausnir til að auka sveigjanleika og fjölbreytni í matarþjónustu borgarinnar. Samhliða því þarf þó að bjóða upp á tæknikennslu og aðstoð fyrir þau sem þess þurfa.

Ný kynslóð eldra fólks

Þjónusta borgarinnar á að þróast í takt við breytt samfélag. Með nýjum kynslóðum breytast áherslur og væntingar fólks. Sú kynslóð sem nú er að eldast gerir eðlilega aðrar kröfur en fyrri kynslóðir. Fólk hefur ferðast meira, kynnst fjölbreyttari matargerð og er vant því að hafa val um það sem það borðar.

Það á að vera gott að eldast í Reykjavík.

Magnea Gná Jóhannsdóttir

Greinin birtist fyrst í Morgunblaðinu 18. mars 2026