Framboðslisti Framsóknar á Akureyri
Framboðslisti Framsóknarflokksins á Akureyri fyrir bæjarstjórnarkosningarnar 26. maí næstkomandi var samþykktur einróma á fulltrúaráðsfundi félagsins laugardaginn 3. mars.
Fulltrúaráðið stillti upp listanum þar sem Guðmundur Baldvin Guðmundsson, bæjarfulltrúi og formaður bæjarráðs, skipar efsta sæti, Ingibjörg Isaksen, bæjarfulltrúi og framkvæmdastjóri er í öðru sæti, Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir búfjárerfðafræðingur í því þriðja, Tryggvi Már Ingvarsson landmælingaverkfræðingur skipar fjórða sæti listans, Sunna Hlín Jóhannesdóttir framhaldsskólakennari er í fimmta sæti og Jóhannes Gunnar Bjarnason, íþróttafræðingur og fyrrverandi bæjarfulltrúi, skipar sjötta sæti listans. Á myndinn eru frá vinstri: Sunna Hlín Jóhannesdóttir, Jóhannes Gunnar Bjarnason, Ingibjörg Isaksen, Guðmundur Baldvin Guðmundsson, Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir og Tryggvi Már Ingvarsson.
Við uppstillingu listans var meðal annars áhersla lögð á fjölbreytta menntun og reynslu frambjóðenda, ungt og hæfileikaríkt fólk í bland við reynslumikla frambjóðendur og jafnt hlutfall kynjanna. „Ég fer bjartsýnn inn í kosningabaráttuna og vongóður um góða niðurstöðu enda framboðslistinn einhuga og vel skipaður hópur,“ segir Guðmundur Baldvin Guðmundsson, oddviti listans.
„Ég hlakka til að vinna með þessum öfluga hópi frambjóðenda Framsóknarflokksins sem gengur samstíga inn í komandi kosningabaráttu,“ segir Ingibjörg Isaksen bæjarfulltrúi.
Á framboðslista Framsóknarflokksins fyrir bæjarstjórnakosningarnar eru 22 frambjóðendur, 11 konur og 11 karlar.
Framsóknarmenn fengu tvo bæjarfulltrúa í sveitarstjórnarkosningunum 2014, Guðmund Baldvin Guðmundsson og Ingibjörgu Isaksen.
Framboðslisti Framsóknarflokksins á Akureyri:
Guðmundur Baldvin Guðmundsson, bæjarfulltrúi og formaður bæjarráðs
Ingibjörg Isaksen, bæjarfulltrúi og framkvæmdastjóri
Gunnfríður Elín Hreiðarsdóttir búfjárerfðafræðingur
Tryggvi Már Ingvarsson landmælingaverkfræðingur
Sunna Hlín Jóhannesdóttir framhaldsskólakennari
Jóhannes Gunnar Bjarnason, íþróttafræðingur og fyrrverandi bæjarfulltrúi
Halldóra Kristín Hauksdóttir, lögmaður
Sverre Andreas Jakobsson, fyrirtækjaráðgjafi og handboltaþjálfari
Óskar Ingi Sigurðsson, rafmagnsiðnfræðingur og kennari
Anna Rakel Pétursdóttir, nemi og knattspyrnukona
Grétar Ásgeirsson, flokksstjóri og vélamaður
Katrín Ásgrímsdóttir, garðyrkjufræðingur
Gunnar Þórólfsson, verkamaður
Ólöf Rún Pétursdóttir, nemi
Siguróli M. Sigurðsson, sagnfræðingur
Ragnhildur Hjaltadóttir, umboðsmaður
Árni Gísli Magnússon, sölumaður
Petrea Ósk Sigurðardóttir, leikskólakennari
Guðrún Rúnardóttir, bókari
Ólafur Ásgeirsson, fyrrverandi aðstoðaryfirlögregluþjónn
María Ingadóttir, launafulltrúi
Páll H. Jónsson, eldri borgari



