Framboðslisti Framsóknar í Suðvestur samþykktur
Framboðslisti Framsóknarflokksins í Suðvesturkjördæmi fyrir komandi alþingiskosningar var samþykktur á aukakjördæmisþingi sem haldið var rafrænt í dag. Prófkjör hafði áður farið fram um efstu 5 sæti listans og gerði kjörstjórn tillögu um önnur sæti listans í samræmi við reglur flokksins.
Oddviti listans er Willum Þór Þórsson, þingflokksformaður Framsóknarflokksins. Í öðru sæti á eftir honum er Ágúst Bjarni Garðarsson, bæjarfulltrúi og formaður bæjarráðs í Hafnarfirði, í þriðja sæti er Anna Karen Svövudóttir, samskiptafulltrúi og ferðamálafræðingur, í fjórða sæti er Kristín Hermannsdóttir, háskólanemi og í fimmta sæti er Ívar Atli Sigurjónsson, flugmaður og laganemi.
,,Listinn er skipaður öflugum og fjölbreyttum hópi fólks sem er tilbúið að leggja allt sitt fram í þágu landsins alls á grunni hugsjóna Framsóknarflokksins um samvinnu og jöfnuð. Stór verkefni eru framundan og það verður ekkert hik á okkur við að búa sem best í haginn og byggja af krafti aftur upp efnahagslífið og samfélagið allt að loknum heimsfaraldrinum," segir Willum Þór Þórsson.
Framboðslisti Framsóknar í Suðvesturkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar 25. september 2021:
Willum Þór Þórsson, Kópavogi
Ágúst Bjarni Garðarsson, Hafnarfirði
Anna Karen Svövudóttir, Hafnarfirði
Kristín Hermannsdóttir, Kópavogi
Ívar Atli Sigurjónsson, Kópavogi
Svandís Dóra Einarsdóttir, Kópavogi
Ómar Stefánsson, Kópavogi
Halla Karen Kristjánsdóttir, Mosfellsbæ
Baldur Þór Baldvinsson, Kópavogi
Margrét Vala Marteinsdóttir, Hafnarfirði
Valdimar Víðisson, Hafnarfirði
Hjördís Guðný Guðmundsdóttir, Garðabæ
Einar Gunnarsson, Hafnarfirði
Þorbjörg Sólbjartsdóttir, Mosfellsbæ
Árni Rúnar Árnason, Hafnarfirði
Dóra Sigurðardóttir, Seltjarnarnesi
Páll Marís Pálsson, Kópavogi
Björg Baldursdóttir, Kópavogi
Sigurjón Örn Þórsson, Kópavogi
Tinna Rún Davíðsdóttir Hemstock, Garðabæ
Einar Sveinbjörnsson, Garðabæ
Helga Björk Jónsdóttir, Garðabæ
Einar Bollason, Kópavogi
Hildur Helga Gísladóttir, Hafnarfirði
Birkir Jón Jónsson, Kópavogi
Eygló Harðardóttir, Mosfellsbæ



