Framboðslisti Framsóknar og óháðra í Fjarðabyggð
Félagsfundur í Framsóknarfélagi Fjarðabyggðar, sem haldinn var 12.apríl, samþykkti einróma framboðslista Framsóknar og óháðra fyrir sveitarstjórnarkosningarnar þann 26.maí næstkomandi. Mun Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar Fjarðabyggðar, leiða listann og eru bæjarfulltrúarnir Pálína Margeirsdóttir og Hulda Sigrún Guðmundsdóttir í öðru og þriðja sæti.
Kosið verður í sameinaðri Fjarðabyggð í komandi sveitarstjórnarkosningum þar sem sameining milli Breiðdals og Fjarðabyggðar var samþykkt í íbúakosningu í sveitarfélögunum þann 24. mars síðastliðinn.
Jón Björn Hákonarson, oddviti listans, segist vera afar þakklátur og stoltur af því að fá að leiða listann til kosninga í sameinuðu sveitarfélagi. „Mér er efst í huga þakklæti fyrir það traust sem mér er sýnt að fá að leiða lista frambjóðenda Framsóknar og óháðra í komandi sveitarstjórnarkosningum í okkar góða sveitarfélagi. Styrkleikar Fjarðabyggðar eru fjölbreytileiki sveitarfélagsins á öllum sviðum, sterkt atvinnulíf og fjölskylduvænt samfélag sem við þurfum að hlúa að og efla ennfrekar. Þá er ég mjög ánægður með að á listanum sitja frambjóðendur úr öllum sjö byggðarkjörnum Fjarðabyggðar með fjölbreytta reynslu sem vilja leggja hönd á plóg og vinna að því að gera gott samfélag enn betra.“
Framboðslisti Framsóknar og óháðra í Fjarðabyggð:
Jón Björn Hákonarson, forseti bæjarstjórnar
Pálína Margeirsdóttir, bæjarfulltrúi og ritari
Hulda Sigrún Guðmundsdóttir, bæjarfulltrúi og ritari
Jón Kristinn Arngrímsson, matráður
Ívar Dan Arnarson, vélstjóri
Ingólfur Finnsson, bifvélavirki
Aðalbjörg Guðbrandsdóttir, húsmóðir
Bjarni Stefán Vilhjálmsson, verkstjóri
Elva Bára Indriðadóttir, leiðbeinandi
Sigfús Vilhjálmsson, útvegsbóndi
Guðfinna Erlín Stefánsdóttir, forstöðumaður
Bjarki Ingason, framleiðslustarfsmaður og nemi
Gunnlaugur Ingólfsson, bóndi
Elsa Guðjónsdóttir, sundlaugarvörður
Þórhallur Árnason, varðstjóri
Svanhvít Aradóttir, þroskaþjálfi
Sævar Arngrímsson, skipuleggjandi viðhalds
B. Guðmundur Bjarnson, verkstjóri



