Framboðslisti Framsóknar og óháðra í Garði og Sandgerði
B-listi Framsóknar og óháðra í sameiginlegu sveitarfélagi Garðs og Sandgerðis hefur verið samþykktur vegna sveitarstjórnarkosninganna þann 26. maí næstkomandi. Á listanum eru 10 konur og 8 karlar, þar af eru 3 konur í efstu 4 sætum listans segir í fréttatilkynningu, en núverandi bæjarfulltrúi B-listans í Sandgerði, Daði Bergþórsson, leiðir listann.
Í öðru sæti er Álfhildur Sigurjónsdóttir, varabæjarfulltrúi og tollmiðlari, og í því þriðja er Thelma Dögg Þorvaldsdóttir, myndlistarkennari. Í heiðurssæti listans er Guðmundur Skúlason, bæjarfulltrúi, en hann hefur leitt B-listann í Sandgerði frá árinu 2010.
„Ég er gífurlega ánægður með þennan fjölbreytta og vel skipaðan framboðslista. Málefnavinna er að fara í gang og hvetjum við alla áhugasama bæjarbúa að taka þátt í því með okkur“, segir Daði Bergþórsson oddviti B-lista Framsóknar og óháðra.
„Mikil tilhlökkun og gleði er ríkjandi í framboðshópnum og vilji til að fylgja eftir sameiningu Garðs og Sandgerðis með mikilli og góðri uppbyggingu og gera gott samfélag enn betra. Ég fer bjartsýnn inní baráttuna og vongóður um góða niðurstöðu.“
Framboðslisti Framsóknar og óháðra í Garði og Sandgerði:
Daði Bergþórsson, bæjarfulltrúi og deildarstjóri
Álfhildur Sigurjónsdóttir, varabæjarfulltrúi og tollmiðlari
Thelma Dögg Þorvaldsdóttir, myndmenntakennari
Erla Jóhannsdóttir, grunnskólakennari
Eyjólfur Ólafsson, varabæjarfulltrúi og rafeindavirkameistari
Úrsúla María Guðjónsdóttir, laganemi
Guðrún Pétursdóttir, flugverndarstarfsmaður
Unnar Már Pétursson, vaktstjóri
Jóna María Viktorsdóttir, þjónustufulltrúi
Jónas Eydal Ármannsson, framhaldsskólakennari
Aldís Vala Hafsteinsdóttir, viðskiptafræðinemi
Sigurjón Elíasson, tækjastjóri
Berglind Mjöll Tómasdóttir, varabæjarfulltrúi og vaktstjóri
Bjarki Dagsson, kerfisstjóri
Hulda Ósk Jónsdóttir, verkstjóri
Jón Sigurðsson, bóndi
Ólöf Hallsdóttir, húsmóðir
Guðmundur Skúlason, bæjarfulltrúi og aðstoðarvarðstjóri



