Framboðslisti Framsóknarflokksins í Kópavogi
Framboðslisti Framsóknarflokksins í Kópavogi var samþykktur í gærkvöldi. Birkir Jón Jónsson bæjarfulltrúi flokksins leiðir listanna. Í öðru sæti er Helga Hauksdóttir, lögfræðingur og í því þriðja Baldur Þór Baldvinsson, formaður Félags eldri borgara.
Framboðslistinn er skipaður 11 konum og 11 körlum. Á myndinni eru frá vinstri: Baldur Þór Baldvinsson, Gunnar Sær Ragnarsson, Helga Hauksdóttir, Sverrir Kári Karlsson, Birkir Jón Jónsson, Kristín Hermannsdóttir, Björg Baldursdóttir og Helga María Hallgrímsdóttir.
Framboðslisti Framsóknarflokksins í Kópavogi:
Birkir Jón Jónsson, bæjarfulltrúi og fv.alþingismaður
Helga Hauksdóttir, lögfræðingur
Baldur Þór Baldvinsson, form. Félags eldri borgara
Kristín Hermannsdóttir, nemi og tamningakona
Sverrir Kári Karlsson, verkfræðingur
Helga María Hallgrímsdóttir, sérkennari
Gunnar Sær Ragnarsson, háskólanemi
Björg Baldursdóttir, skólastjóri
Hjörtur Sveinsson, rafvirki
Ólöf Pálína Úlfarsdóttir, kennari
Sigurður H. Svavarsson, rekstrarstjóri
Sóley Ragnarsdóttir, aðstoðarmaður ráðherra
Jónas Þór, sagnfræðingur og fararstjóri
Guðrún Viggósdóttir, fv.deildarstjóri
Magnús Guðjónsson, framkvæmdastjóri
Dóra Georgsdóttir, eldri borgari
Páll Marís Pálsson, háskólanemi
Valdís Björk Guðmundsdóttir, háskólanemi
Sigurbjörg Vilmundardóttir, leikskólastjóri
Kristinn Dagur Gissuarson, viðskiptafræðingur
Kristbjörg Þórisdóttir, sálfræðingur og varaþingmaður
Willum Þór Þórsson, alþingismaður



