Framboðslisti Framsóknarmanna og félagshyggjufólks í Dalvíkurbyggð
B-listi Framsóknar- og félagshyggjufólks í Dalvíkurbyggð 2018 var lagður fram og samþykktur einróma í fulltrúaráði þann 15. mars. B-listann skipa einstaklingar alls staðar að úr Dalvíkurbyggð með víðtæka reynslu úr atvinnulífinu og er kynjahlutfall jafnt á listanum, 7 konur og 7 karlar.
Katrín Sigurjónsdóttir framkvæmdastjóri Sölku-Fiskmiðlunar hf. skipar efsta sæti listans en hún sat í bæjarstjórn Dalvíkurbyggðar á árunum 1994-2004 fyrir B-listann. Í öðru sæti er Jón Ingi Sveinsson, framkvæmdastjóri og í því þriðja er Þórhalla Franklín Karlsdóttir, þroskaþjálfi. Í heiðurssæti listans er Atli Friðbjörnsson á Hóli, bóndi og fyrrv. oddviti.
Málefnavinna er farin í gang. Mikil tilhlökkun og gleði er ríkjandi í framboðshópnum og vilji til að fylgja eftir mikilli og góðri uppbyggingu sveitarfélagsins og gera gott byggðarlag enn betra.
Framboðslisti Framsóknarmanna og félagshyggjufólks í Dalvíkurbyggð:
Katrín Sigurjónsdóttir, framkvæmdastjóri
Jón Ingi Sveinsson, framkvæmdastjóri
Þórhalla Franklín Karlsdóttir, þroskaþjálfi
Felix Rafn Felixson, viðskiptafræðingur
Jóhannes Tryggvi Jónsson, sjúkraflutningamaður og bakari
Lilja Guðnadóttir, hjúkrunarfræðingur og ljósmóðir
Tryggvi Kristjánsson, verslunarstjóri
Kristinn Bogi Antonsson, viðskiptastjóri
Monika Margrét Stefánsdóttir, MA í heimskautarétti
Sigvaldi Gunnlaugsson, vélvirki
Hólmfríður Margrét Sigurðardóttir, glerlistakona
Guðrún Erna Rúdólfsdóttir, verslunarstjóri
Eydís Arna Hilmarsdóttir, sjúkraliði
Atli Friðbjörnsson, bóndi og fv.oddviti



