Framfarir eða áframhaldandi stöðnun?
Greinar

Kæru íbúar í Suðurnesjabæ.
Þann 16. maí göngum við til sveitarstjórnarkosninga. Þessar kosningar skipta samfélagið okkar miklu máli því næstu ár eru undir. Valið er skýrt: viljum við áframhaldandi stöðnun í mikilvægum málaflokkum eða raunverulegar framfarir fyrir samfélagið okkar?
Við í Framsókn og óháðum höfum þann kraft og þann vilja sem þarf til að hrinda hlutunum í framkvæmd. Nú þarf að velja stjórnmálaafl sem þorir að taka ákvarðanir og vinna af ábyrgð fyrir samfélagið allt.
Við vitum hvað þarf til að ná árangri fyrir Suðurnesjabæ. Það sýndum við í verki á árunum 2022-2024 þegar Framsókn sat í meirihluta sveitarfélagsins. Þá var unnið markvisst að uppbyggingu og framþróun með hagsmuni íbúanna að leiðarljósi.
Á því tímabili voru margar mikilvægar ákvarðanir teknar. Má þar nefna innleiðingu siðareglna fyrir kjörna fulltrúa og beint streymi frá bæjarstjórnarfundum til að auka gagnsæi og lýðræði. Lokið var við nýjan leikskóla í Sandgerði, Grænuborg, og gjaldfrjálsar skólamáltíðir í grunnskólum voru innleiddar.
Frístundaakstur fyrir unga iðkendur var settur á laggirnar til að auðvelda börnum að sækja íþróttaæfingar milli byggðarkjarna. Þá var auknu fjármagni varið til viðhalds leiksvæða sveitarfélagsins og heimagreiðslur ásamt stuðningi við dagforeldra hækkaðar.
Einnig voru teknar mikilvægar ákvarðanir um uppbyggingu íþróttamannvirkja, meðal annars framkvæmdir í íþróttahúsinu í Garði og við tókum ákvörðun um staðsetningu gervigrasvallar í Suðurnesjabæ til að efla íþróttastarf til framtíðar sem núverandi meirihluti sló út af borðinu.
Þá var tryggt fjármagn frá ríkinu vegna fylgdarlausra barna og gerður samningur milli ráðuneytisins og Suðurnesjabæjar um eflingu barnaverndarþjónustu. Lóðarframboð var aukið til muna og tryggð var heilbrigðisþjónusta í sveitarfélaginu í samstarfi við Willum Þór Þórsson, þáverandi heilbrigðisráðherra.
Auk þessara verkefna komum við að fjölmörgum öðrum málum með beinum og óbeinum hætti í nefndar- og stjórnarstörfum á vegum sveitarfélagsins.
Nú þarf að horfa til framtíðar. Til þess að framtíðarsýn verði að veruleika verðum við líka að horfast í augu við stöðuna eins og hún er í dag.
Meirihluti Sjálfstæðisflokks, Samfylkingar og Bæjarlista hefur starfað á árunum 2024-2026 og að okkar mati hefur ákveðin kyrrstaða einkennt mikilvæg mál í sveitarfélaginu. Verkefni sem hefðu átt að komast lengra eru enn á umræðustigi og tækifæri sem hefðu mátt nýta betur hafa farið forgörðum.
Í ört vaxandi sveitarfélagi eins og Suðurnesjabæ hefur slíkt raunverulegar afleiðingar fyrir íbúa, þjónustu og framtíðarþróun samfélagsins.
Það er kominn tími til að rjúfa kyrrstöðuna og sækja fram. Við þurfum skýra sýn á uppbyggingu sveitarfélagsins, markvissari ákvarðanatöku og meiri kraft í framkvæmdum.
Samfélag er meira en lóðir og götur. Öflugt samfélag byggir á sterkum innviðum, snyrtilegu umhverfi og þjónustu sem mætir þörfum fólks á öllum aldri. Það þarf að ráðast í kröftuga uppbyggingu íþróttamannvirkja, efla stuðningsþjónustu og hlúa betur að málefnum eldri borgara.
Jafnframt verðum við að standa vörð um fjölskyldufólkið í bænum. Heimilin finna nú þegar fyrir þunga verðbólgu og vaxta og því er ekkert svigrúm til frekari skattahækkana á íbúa. Sveitarfélagið þarf að sýna ábyrgð og hlífa fólki við auknum álögum, hvort sem er í formi fasteignagjalda eða annarra gjalda.
Við þurfum fólk í forystu sem þorir að taka af skarið og vinnur af ábyrgð, skynsemi og festu við lausn þeirra verkefna sem fram undan eru.
Við óskum eftir þínum stuðningi á kjördag.
Setjum X við B.
Anton Kristinn Guðmundsson
Höfundur er oddviti Framsóknarflokksins og óháðra í Suðurnesjabæ.



