Framsókn fyrir öflugt atvinnulíf og sterkt samfélag
Greinar

Öflugt og fjölbreytt atvinnulíf er ein mikilvægasta forsenda sterks samfélags. Þegar fyrirtækjum gengur vel skapast störf, þjónusta eflist og sveitarfélagið fær aukið svigrúm til að fjárfesta í innviðum, fólki, fjölskyldum og framtíðinni. Framsókn vill byggja upp atvinnuumhverfi í Reykjanesbæ sem sameinar kraftmikla uppbyggingu, ný tækifæri og samfélagslega ábyrgð. Sækja stofnanir til bæjarins og styðja markvisst við nýsköpun.
Reykjanesbær hefur einstaka stöðu þegar kemur að atvinnuuppbyggingu. Hér eru sterkir innviðir, góðar hafnir, öflugt atvinnusvæði og nálægð við einn mikilvægasta alþjóðaflugvöll landsins. Fá sveitarfélög búa yfir sambærilegum möguleikum til vaxtar, nýsköpunar og fjölbreyttrar atvinnustarfsemi. Það er verkefni okkar að nýta þessa sérstöðu enn betur og kynna bæinn markvisst sem eftirsóknarverðan stað fyrir bæði innlend og alþjóðleg fyrirtæki.
Um leið þarf að sjá til þess að fjölbreytt menntatækifæri séu til staðar með auknu samstarfi við menntastofnanir og markvissu átaki. Huga þarf að nýsköpun, smáfyrirtækjum og umhverfi einyrkja með því að styðja við slíka starfsemi.
Framsókn vill skapa umhverfi þar sem fyrirtæki sjá tækifæri til vaxtar og þróunar. Með góðum rekstri sveitarfélagsins og skýrri framtíðarsýn getum við eflt markaðs- og atvinnumál enn frekar, laðað að ný fyrirtæki og styrkt stoðir atvinnulífsins. Fjölbreytt atvinnulíf gerir samfélagið sterkara og minna viðkvæmt fyrir sveiflum í einstökum atvinnugreinum. Það skiptir máli fyrir öryggi fjölskyldna, stöðugleika í samfélaginu og framtíð ungs fólks sem vill byggja líf sitt hér í bænum.
Fyrirtæki gegna ekki aðeins mikilvægu hlutverki í efnahagslífinu heldur hafa þau einnig áhrif á samfélagið allt í kringum sig. Mörg fyrirtæki í Reykjanesbæ leggja nú þegar sitt af mörkum með stuðningi við íþróttafélög, menningarstarf, góðgerðarmál, skólastarf og fjölbreytt samfélagsverkefni.
Framtíð Reykjanesbæjar byggist á því að hér sé öflugt atvinnulíf sem skapar verðmæti, fjölbreytt störf og tækifæri fyrir fólk með ólíkan bakgrunn, menntun og reynslu. Við viljum halda áfram að byggja upp samfélag þar sem fyrirtæki geta vaxið, nýsköpun fær tækifæri og svigrúm til að vaxa og samfélagsleg ábyrgð er metin að verðleikum.
Framsókn sér mikil tækifæri fram undan. Með skýrri stefnu, árangursmælikvörðum og góðri samvinnu getum við gert Reykjanesbæ að enn öflugri stað fyrir fyrirtæki og stofnanir til framtíðar með hag íbúa að leiðarljósi.
Ásta María Guðmundsdóttir og Steinunn Ósk Valsdóttir
frambjóðendur Framsóknar í Reykjanesbæ fyrir sveitarstjórnarkosningar 16. maí nk.


