
Á undanförnum árum hefur velferðarþjónusta sveitarfélaga staðið frammi fyrir áskorunum. Má þar meðal annars nefna Covid faraldurinn, móttöku flóttafólks, innleiðingu farsældarlaga og samfélagslegar breytingar. Þetta hefur verið dýrmæt reynsla sem hefur sýnt bæði styrkleika kerfisins og hvar þörf var á umbótum. Mannréttindasjónarmið hafa jafnframt aukið vægi, enda lykilatriði að tryggja jafnt aðgengi að þjónustu og að allir íbúar upplifi sig þátttakendur í samfélaginu.
Verkefni sem unnin hafa verið á þessu kjörtímabili eru í auknum mæli farin að skila sér í raunverulegum aðgerðum sem snerta daglegt líf fólks. Þar má nefna innleiðingu á farsældarlöggjöfinni sem hefur styrkt samvinnu milli kerfa í þágu barna og fjölskyldna. Einnig hefur verið stigið mikilvægt skref í húsnæðismálum með opnun íbúðakjarna í Kleifarkór. Ljóst er samt að gera þarf betur þar með því að setja fram langtíma uppbyggingaráætlun í húsnæðismálum fyrir viðkvæma hópa.
Flutningur velferðarsviðs í Vallakór hefur skapað betri aðstöðu fyrir samþætta þjónustu og aukið aðgengi fyrir íbúa. Þá hafa breytingar á starfsemi í Roðasölum miðað að því að bæta þjónustu og nýta húsnæði betur í þágu þjónustuþega.
Sérstaklega vekur athygli sá árangur sem náðst hefur í verkefninu “Virkni og vellíðan” þar sem þátttaka hefur aukist verulega á skömmum tíma. Sú þróun endurspeglar aukna þörf en einnig að verkefnin eru að ná til fólks og skila raunverulegum árangri í daglegu lífi. Næstu skref er að auka enn við þetta verkefni en einnig viljum við getað boðið þeim sem ekki hafa getu til að komast í þessa þjónustu að fá hana heim með það að markmiði að þjónustuþegi geti sótt þá félagsþjónustu sem boðin er í félagsmiðstöðvum eldri borgara í Kópavogi.
Þrátt fyrir þessa jákvæðu þróun eru áskoranir áfram til staðar. Þjónustuþörf hefur aukist og orðið flóknari, sérstaklega hjá börnum, fjölskyldum og eldri borgurum. Þá þarf áfram að hraða innleiðingu lausna svo kerfið nái að bregðast við þörfum í rauntíma.
Framsókn í Kópavogi leggur áherslu á að byggja áfram á þeim grunni sem hefur verið lagður. Fyrir okkur skiptir máli að velferðarþjónustan sé ekki aðeins vel skipulögð á blaði, heldur virki hún í reynd fyrir íbúa bæjarins. Það þýðir að þjónustan þarf að vera aðgengileg, skilvirk og byggð á raunverulegum þörfum fólks.
Við viljum leggja sérstaka áherslu á eftirfarandi atriði: A) Að styrkja grunnþjónustu velferðarsviðs og fækka þeim sem eru á biðlistum. B) Að setja fram langíma uppbyggingaráhætlun vegna húsnæðismála viðkvæmra hópa. C) styrkja snemmtækan stuðning við börn og fjölskyldur, þar sem snemmtæk íhlutun skilar mestum árangri til lengri tíma. D) Halda áfram að styrkja þjónustu við eldri borgara með meiri opnun félagsmiðstöðva og verkefnið Virkni og vellíðan.
Um leið teljum við lykilatriði að ákvarðanir byggist á traustum gögnum og góðu samtali við íbúa, starfsfólk og félagasamtök. Velferð er sameiginlegt verkefni sem krefst samvinnu og trausts.
Reynsla síðustu ára sýnir að þegar unnið er markvisst og í samvinnu er hægt að ná raunverulegum framförum. Við höfum brugðist við erfiðum aðstæðum, mótað skýrari stefnu og hafið mikilvæga framkvæmd. Nú er tækifærið að halda áfram á þeirri vegferð – af ábyrgð, festu og með skýra sýn um samfélag þar sem allir fá tækifæri til að blómstra.
Svava H Friðgeirsdóttir
Skipar 4. sæti á lista Framsóknarflokksins til sveitarstjórnarkosninga í Kópavogi



