
Ákvörðun um hvernig sveitarfélag er rekið getur ekki eingöngu snúist um óskir, draumsýn og væntingar, heldur verður að taka mið af stöðunni sem uppi er hverju sinni. Kröfur íbúa um betri þjónustu, öfluga innviði og hærri lífsgæði eru eðlilegar og réttmætar, en þær verða ekki uppfylltar nema með aga í rekstri og skýrri forgangsröðun sem byggir á raunhæfum forsendum.
Það er ekki svigrúm fyrir óljósa stefnu eða skammtímahugsun. Við verðum að forgangsraða af festu, velja verkefni sem raunverulega skila árangri og tryggja að fjármunum sé varið þar sem þeir nýtast best til framtíðar. Ábyrgur rekstur felur ekki í sér stöðnun heldur þvert á móti uppbyggingu, betri þjónustu og fjárfestingar. Fjárfestingar þurfa hins vegar að byggja á traustum grunni og jafnvægi þarf að ríkja á milli tekna og útgjalda.
Öflugt atvinnulíf er forsenda velferðar í samfélaginu. Það er ekki aukaatriði, heldur undirstaða alls rekstrar sveitarfélagsins. Það er atvinnulífið og störfin sem skapa tekjur sem gera okkur kleift að standa undir öflugu skólastarfi, félagsþjónustu, íþróttastarfi og uppbyggingu nauðsynlegra innviða eins og t.d. gatnakerfisins. Sterkt og öflugt atvinnulíf skapar tækifæri. Þess vegna á sveitarfélagið að vera skýr og virkur þátttakandi í því að skapa umhverfi sem styður við atvinnuuppbyggingu, fjárfestingu og nýsköpun.
Sjálfbær rekstur sveitarfélags er ekki fjarlægt hugtak heldur eitthvað sem snertir daglegt líf fólks, þjónustuna sem við fáum og alla innviði sem við treystum á. Þetta eru ekki bara fræðilegar umræður, heldur eitthvað sem hefur áhrif á lífsgæði bæjarbúa.
Ég er stoltur af þeim öfluga hópi sem ég starfa með í framboði Framsóknar og frjálsra. Við erum tilbúin að taka ákvarðanir og axla ábyrgð. Hér er fólk sem veit að stjórnun snýst um að velja, forgangsraða og standa við ákvarðanir og að ekki verður hægt að þóknast öllum.
Framundan eru mikilvæg verkefni sem krefjast festu, skýrleika, samvinnu og pólitísks hugrekkis. Við treystum okkur í þá vinnu með ábyrgan rekstur að leiðarljósi og sterku atvinnulífi sem veitir grunn að velferð og skýrri forgangsröðun í þágu íbúa.
Saman getum við tryggt að ákvarðanir dagsins í dag verði grunnur að sterkari framtíð.
Ragnar Sæmundsson
Höf. er bæjarfulltrúi og skipar 1. sæti á lista Framsóknar og frjálsra á Akranesi



