Heilbrigðara og hamingjusamara samfélag

Samfélag þar sem hreyfing, íþróttir, virkni og heilbrigður lífsstíll eru hluti af lífi íbúa er líklegra til þess að vera hamingjusamara. Það hefur verið sýnt fram á að með hreyfingu og virkni getum við ekki bara stuðlað að aukinni hamingju heldur einnig betri líkamlegri heilsu og geðheilsu.
Þá sýna rannsóknir að dvöl í náttúru hefur jákvæð áhrif á bæði líkamlega og andlega heilsu og styrkir jafnframt tengsl milli foreldra og barna. Því er mikilvægt að sveitarfélög móti stefnu sem ýtir undir og gerir íbúum auðvelt að njóta útivistar og hreyfingar.
Lýðheilsustefna
Framsókn vill að sameinað sveitarfélag Borgarbyggðar og Skorradalshrepps verði leiðandi heilsueflandi samfélag þar sem lýðheilsa er höfð að leiðarljósi í allri ákvarðanatöku. Sem liður í því leggjum við upp með að unnið verði að gerð heildstæðrar lýðheilsustefnu með það að markmiði að skapa heilnæmt, aðgengilegt og sjálfbært umhverfi þar sem er tryggt að allir íbúar, óháð aldri eða aðstæðum, hafi raunhæf tækifæri til hreyfingar, útivistar og félagslegra samskipta.
Græn svæði til útivistar
Græn svæði gegna mikilvægu hlutverki í líðan íbúa og viðhorfi þeirra til samfélagsins. Því leggur Framsókn áherslu á að vernda og þróa slík svæði, auk þess að efla samstarf við Skógræktarfélag Borgarfjarðar um uppbyggingu og viðhald útivistarskóga í eigu sveitarfélagsins, m.a. með gerð leiksvæðis og grillskýlis í Einkunnum.
Við þurfum að fjölga og bæta leiksvæði fyrir börn og unglinga og gera þau aðlaðandi. Við viljum fleiri bekki og borð, hreyfistöðvar og umhverfi þar sem öll fjöldskyldan, stór og smá, gömul og ung, getur komið saman og notið útiverunnar. Uppbygging góðs stígakerfis til útivistar með skýrum merkingum og reglulegu viðhaldi og vetrarþjónustu á tilteknum stígum gegnir lykilhlutverki.
Menning og listir
Menning og félagslíf eru einnig mikilvægir þættir lýðheilsu. Slík starfsemi styrkir samfélagsanda og eykur lífsgæði. Framsókn vill vinna markvisst að því að efla fjölbreytt menningarlíf og styðja við grasrót í listum, þannig að sveitarfélagið verði vettvangur þar sem skapandi greinar geta dafnað.
Áfram verður stutt við starfsemi safna sveitarfélagsins sem gegna lykilhlutverki í að varðveita og miðla listum, sögu og vísindum. Framsókn vill í samstarfi við stjórnvöld vinna að því að bæta sýningaraðstöðu Snorrastofu í Reykholti með áherslu á bókmenntaarf þjóðarinnar. Þá verður lögð áhersla á að styrkja Skallagrímsgarð sem lifandi vettvang viðburða allt árið, með bættri aðstöðu og aukinni nýtingu.
Íþróttir- og tómstundir
Íþrótta- og tómstundamál skipa stóran sess í stefnu Framsóknar og er stefna okkar að hækka frístundastyrk barna og ungmenna um 50%. Íþróttahreyfingin gegnir lykilhlutverki sem stærsta fjöldahreyfing landsins í málefnum forvarna. Það er mikilvægt að viðhalda góðu samstarfi og gera samning við UMSB og þau íþróttafélög sem sinna barna- og ungmennastarfi svo hægt sé að koma því fjármagni í framkvæmd sem gert hefur verið ráð fyrir í fjárhagsáætlun.
Framsókn leggur áherslu á áframhaldandi uppbyggingu íþróttamannvirkja og aðstöðu til heilsueflingar fyrir alla íbúa. Fylgt verður eftir metnaðarfullri íþróttastefnu fyrir árin 2025–2030, auk þess sem unnið verður markvisst að viðhaldi mannvirkja. Einnig verður bætt aðstaða fyrir frístund eftir skóla, meðal annars með tengingu við nýtt íþróttahús í Borgarnesi, þannig að börn úr dreifbýli hafi jafnan aðgang að starfi og æfingum.
Félagsmiðstöðvar
Við í Framsókn höfum stefnu á að efla félagsmiðstöðvastarf bæði í Óðali og Mími. Meðal annars með lengri opnunartíma og bættri aðstöðu í Óðali. Markmiðið er að tryggja öruggan samastað fyrir börn og ungmenni þar sem þau geta tekið þátt í uppbyggilegu starfi alla virka daga. Opnun alla daga skiptir sérstaklega máli fyrir þau börn sem sækja íþróttir úr dreifbýli og hafa hingað til skort fastan samverustað. Þá vill Framsókn endurvekja starfsemi ungmennahússins Mímis til að tryggja félagsaðstöðu fyrir ungt fólk á aldrinum 16–25 ára.
Sveitarfélagið getur verið í styðjandi og leiðandi hlutverki þegar kemur að lýðheilsu, heilsueflingu, menningu og íþróttum, svo að við getum saman lagt grunn að sterkara, heilbrigðara og samheldnara samfélagi þar sem velferð íbúa er í forgrunni og allir fá tækifæri til að blómstra.
Sonja Lind Estrajher Eyglóardóttir
Höf. skipar 2. sæti framboðs Framsóknarflokksins í sameinuðu sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradalshrepps



