Hjálmar Bogi leiðir lista Framsóknar í Norðurþingi
Tillaga uppstillingarnefndar um framboðslista Framsóknar & félagshyggju í Norðurþingi fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar 14. maí var borinn upp til atkvæða á fjölmennum félagsfundi hjá Framsóknarfélagi Þingeyinga í dag, laugardaginn 12. mars. Tillagan var samþykkt samhljóða og hlaut mikið lof. Fullt var út úr dyrum á fundinum og mikill kraftur í félögum fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Framsóknarflokkurinn er með þrjá fulltrúa af níu í sveitarstjórn og hafa þeir fulltrúar verið ötullir fulltrúar samfélagsins.
Oddviti listans er Hjálmar Bogi Hafliðason, deildarstjóri og kennari á Húsavík, sem hefur setið níu ár í sveitarstjórn auk þess að vera varafulltrúi um tíma og sinnt þingstörfum. Soffía Gísladóttir skipar annað sætið og er búsett í Lindarbrekku í Kelduhverfi. Hún kemur ný inn á listann en hún þekkir svæðið vel sem forstöðumaður Vinnumálastofnunar á Norðurlandi Eystra og Austurlandi og hefur einnig sinnt þingstörfum. Eiður Pétursson, vélstjóri á Húsavík og starfar fyrir Landsvirkjun, skipar þriðja sætið. Hann er varafulltrúi framboðsins í dag og hefur setið í fjölskylduráði sveitarfélagsins á kjörtímabilinu. Þar á eftir koma Bylgja Steingrímsdóttir, Eysteinn Heiðar Kristjánsson og Hanna Jóna Stefánsdóttir.
Framboðslistinn:
Hjálmar Bogi Hafliðason, Húsavík
Soffía Gísladóttir, Kelduhverfi,
Eiður Pétursson, Húsavík
Bylgja Steingrímsdóttir, Húsavík
Eysteinn Heiðar Kristjánsson, Húsavík
Hanna Jóna Stefánsdóttir, Húsavík
Stefán Haukur Grímsson, Kópaskeri
Heiðar Hrafn Halldórsson, Húsavík
Brynja Rún Benediktsdóttir, Húsavík
Unnsteinn Ingi Júlíusson, Húsavík
Birna Björnsdóttir, Raufarhöfn
Aðalgeir Bjarnason, Húsavík
Guðlaug Anna Ívarsdóttir, Öxarfirði
Bergur Elías Ágústsson, Húsavík
Aðalheiður Þorgrímsdóttir, Reykjahverfi
Óskar Ásgeirsson, Húsavík
Unnur Erlingsdóttir, Húsavík
Kristján Kárason, Húsavík



