
Kæru Reykjavíkingar. Þegar við kjósum viljum við vita hvað við fáum fyrir atkvæði okkar. Ég tel sanngjarnt og eðlilegt að þið vitið hvert við í Framsókn stefnum eftir kosningar. Við viljum mynda meirihluta frá miðju til hægri. Það þýðir að við útilokum Samfylkinguna. Það kom nefnilega í ljós á þessu kjörtímabili að Samfylkingin er ófær um að breyta kerfinu sem hún byggði upp.
Það er áhyggjuefni að hvorki Sjálfstæðisflokkur né Viðreisn hafa talað jafn skýrt um þetta og við í Framsókn. Atkvæði greitt Framsókn mun auka líkurnar á því að hægt sé að mynda nýjan meirihluta um nýjar áherslur þar sem við mætum þörfum borgarbúa en erum ekki sífellt að reyna að breyta því hvernig fólk lifir lífi sínu.
Uppnefnið
Ég var kallaður „þrotabússtjórinn“ þegar ég tók við sem borgarstjóri. Það var brandari sem eltist ekki vel. Með aga og ráðdeild í rekstri tókst undir minni stjórn að snúa rúmlega 16 milljarða halla yfir í 5 milljarða í afgang. Ég var fyrsti borgarstjórinn í 5 ár til að skila afgangi. Það tók vinstri meirihlutann aðeins eitt ár að breyta því í 5 milljarða halla á ný. Allir vita að traustur rekstur er grunnurinn að því að bæta þjónustuna. Það er vel hægt að ná enn meiri árangri. Ráðast í stærri kerfisbreytingar sem bæta þjónustu en skila um leið hagræðingu. Þær tillögur eru tilbúnar en við þurfum að komast í meirihluta til að koma þeim til framkvæmda.
Þetta snýst um íbúa
Við í Framsókn viljum færa fjármagn út í hverfin og til íbúa. Á næsta kjörtímabili viljum við styðja við barnafjölskyldur með því að tryggja öllum börnum eina gjaldfrjálsa frístund og styðja tekjulága eldri borgara um allt að 60 þúsund krónur á ári til heilsueflingar. Við viljum styðja betur við íþróttafélögin því þau eru hjartað í hverju hverfi.
Við viljum létta álagi af kennurum í kennslustofunum. Setja á fót móttökudeildir fyrir börn af erlendum uppruna og kenna þeim og foreldrum þeirra íslensku áður en börnin fara inn í bekkina sína. Svo þurfum við átak í íslenskukennslu fyrir öll börn.
Við þurfum að hlusta á íbúa og bregðast við gagnrýni. T.d. hefur stefna borgarinnar í húsnæðismálum framkallað mikinn ójöfnuð. Það þarf að byggja minni og ódýrari íbúðir fyrir unga sem aldna. Og við ætlum að fjárfesta í samgöngumálum án þess að lýsa yfir stríði við íbúa og fyrirtæki. Það er nefnilega hægt að leysa mál ef hugmyndafræðin þvælist ekki fyrir.
Þetta og margt fleira færðu fyrir atkvæðið þitt. Ég hvet þig til að kjósa og vona að þú setjir X við B.
Einar Þorsteinsson
Greinin birtist í Mogganum 15. maí 2026



