Í aðdraganda kosninga
Greinar

Það ætti ekki að hafa farið fram hjá neinum að það er að koma að sveitastjórnarkosningum. Gjarnast birtist þetta kjósendum með áberandi aukningu greinaskrifa og aukinni notkun samskiptamiðla hjá frambjóðendum og oftast snúast greinaskrifin um að koma höggi á pólitíska andstæðinga í þeirri von um að ná hylli kjósenda.
Gjarnan er farið í að taka fyrri ákvarðanir eða ákvarðanaleysi sitjandi meirihluta og slíta þær úr öllu samhengi, en ekki er horft til neinna þeirra þátta sem hafðir voru til hliðsjónar í ákvörðunum.
Þessi atburðarás er ekki ný af nálinni og það virðist vera samfélagslega viðurkennt að gefir þú kost á þér til sveitastjórnarstarfa þá er komið opið skotleyfi á þig sem persónu og það má spyrja sig að því hvort það sé eðlilegt en látum það liggja á milli hluta.
Núna virðast viðhaldsmál fasteigna Norðurþings vera fólki afar hugleikin sem er vel því þau eru mér líka afar hugleikin. Í mörgum greinum og kommentum er fjallað um stjórnsýsluhús Norðurþings af einstaklingum sem slíta atburðarás úr samhengi og máta sig ekki í þær aðstæður sem uppi voru þegar ákvarðanir voru teknar. Hálfpartinn er gert lítið úr veikindum starfsfólks sem í húsinu vann og þeim ákvörðunum sem starfsfólk Norðurþings tók í þessari atburðarás, það er miður og ekki sanngjarnt í garð þessa ágæta fólks.
Við þurfum að komast út úr þessari umræðu og horfa á heildarmyndina og leita lausna því stjórnsýsluhúsið er ekki eina fasteign Norðurþings sem svelt hefur verið á viðhaldi. Til að taka af allan vafa þá er mín skoðun sú að laga á stjórnsýsluhúsið og gera aðstæður þar góðar fyrir okkar ágæta starfsfólk.
Hvert er raunverulega vandamálið og hvernig er hægt að leysa það?
Því miður hefur viðhaldsmálum flestra sveitarfélaga í landinu ekki verið sinnt nægjanlega vel og þannig hefur það líka verið hjá okkur í Norðurþingi. Tel ég ástæðuna vera þá að það að skipta um þak, glugga eða drena hús er ekki líklegt til að skaffa sitjandi sveitastjórnarfólki atkvæði í næstu kosningum og því er freistingin sú að slá þeim á frest og fjárfesta frekar í skemmtilegum verkefnum sem eru líkleg til að skila góðum slatta atkvæða í kjörkassana á 4 ára fresti. Þetta er ekki skynsamlegt og þessu þarf að breyta. Ég tel að við eigum að styrkja stoðir eignasjóðs og greina betur raunverulega viðhaldsþörf og þar með innri leigu. Þannig getum við markvisst unnið okkur út úr uppsöfnuðu viðhaldi ásamt því að vinna að fyrirbyggjandi viðhaldi og þá hættir það að vera pólitískt mál hverju sinni hvort skipta eigi um glugga í þessu húsi eða hinu nú eða drena eitthvert annað hús.
Eignasjóður þarf að innheimta notendur fasteigna Norðurþings um rétta innri leigu svo hann geti staðið undir fyrirbyggjandi viðhaldi og verið sjálfbær um það án pólitískra afskipta en það tekur tíma að ná jafnvægi því uppsafnað viðhald er mikið.
Fái ég kjósandi góður umboð þitt til að vera leiðandi í sveitastjórn Norðurþings þá mun ég leggja áherslu á að innleiða þessar breyttu áherslur á rekstri eignasjóðs. Ég er ég sannfærður um að það skilar sér á endanum í lægri kostnaði á rekstri fasteigna Norðurþings því gott fyrirbyggjandi viðhald skilar sparnaði til lengri tíma litið okkur öllum til hagsbóta.
Eysteinn Heiðar Kristjánsson
Höfundur er nýr oddviti Framsóknar í Norðurþingi

