Íþróttir og forvarnir í Borgarbyggð

Á sambandsþingi UMFÍ sem fram fór í október á síðasta ári hlutu Reykdælir Hvatningarverðlaun UMFÍ. Frábært starf Reykdæla og fjölgun iðkenda hefur vakið athygli á landinu öllu. Sambandsþing UMSB var svo haldið 29. apríl þar sem Reykdælir voru heiðraðir með standandi lófaklappi.
Mikið af okkar fremsta íþróttafólki kemur frá þessu svæði. Helgi Guðjónsson, sem er ríkjandi Íþróttamanneskja Borgarfjarðar, kemur úr Reykdælum. Arnar bróðir Helga er þessa dagana í miðju úrslitaeinvígi um Íslandsmeistaratitil í körfubolta en þetta eru tveir af mörgum öflugum einstaklingum sem koma af þessu svæði. Faðir Helga og Arnars er Guðjón Guðmundsson sem er lifandi goðsögn í íþróttastarfinu hér í Borgarbyggð og einn af þeim sem undirritaður lítur hvað mest upp til. Helgi Eyleifur og öll þau hin sem koma að starfi Ungmennafélagsins Reykdæla eru að vinna stórkostlegt starf alla daga.
Nákvæmlega sama dæmi er hægt að taka á Varmalandi þar sem við eigum t.d. Kristínu Þórhallsdóttur og sjálfa Írisi Grönfeld. Á Hvanneyri er íþróttaáhugi barna og ungmennafélagsandinn magnaður, en þar eru fyrirmyndir alls staðar og heilu fjölskyldurnar sem brenna fyrir starfið. Það er góð starfsemi og öflugir einstaklingar um allt sveitarfélag.
Eitt útilokar ekki annað
Borgarbyggð er víðfeðmt sveitarfélag og mikilvægt að börnum standi til boða að geta æft íþróttir sem hluti af stórri heild og þannig bæði náð meiri framförum í sínu sporti en einnig myndað félagsleg tengsl við mun fleiri einstaklinga. Íþróttastarfið hefur t.d. reynst börnum af erlendum uppruna einstaklega vel þegar kemur að því að ná betri tökum á tungumálinu og að kynnast fleiri krökkum.
Skallagrímur er stærsta íþróttafélagið á svæðinu og er staðsett í Borgarnesi. Starf allra deilda Skallagríms er þannig skipulagt að sem flest börn í allri Borgarbyggð geti sótt þar æfingar. En þrátt fyrir að börn geti mætt á æfingar í Borgarnesi þá þýðir það á engan hátt að starf annarra deilda eigi að leggja niður, enda er unnið gott starf mjög víða í Borgarbyggð og starfið í dreifbýlunum gríðarlega mikilvægt.
Falsfréttir
Í kosningamyndbandi eins framboðs sem hefur verið deilt ansi víða er ýjað að því að ákvörðun hafi verið tekin um að öll íþróttastarfsemi barna muni flytjast í Borgarnes á komandi árum. Það er auðvitað ekki á forræði sveitarfélaga að leggja niður íþróttastarf eða deild. En ég hef unnið í íþróttahreyfingunni í Borgarbyggð í mörg ár og setið flesta formannafundi og sambandsþing UMSB á þeim tíma. Þess vegna leyfi ég mér að vísa þessu „slúðri“ alfarið á bug.
Á framboðslistum er töluvert af fólki sem kemur að íþróttastarfi í Borgarbyggð með beinum eða óbeinum hætti og erum við síður en svo öll á lista hjá sama flokki. Hingað til höfum við sem vinnum við íþróttastarfið getað unnið vel saman og ég er fullviss um að við sem þekkjum til séum öll sammála um að gott starf í dreifbýli þarf að styðja áfram eins vel og hægt er.
Framsókn þakkar öllum sem koma að þessum málaflokki fyrir þeirra framlag í gegnum tiðina og þá sérstaklega sjálfboðaliðum. Við óskum Reykdælum sömuleiðis til hamingju með þeirra frábæra starf og viðurkenningu.
Jón Theodór Jónsson
Höf. skipar 5. sæti framboðs Framsóknarflokksins í sameinuðu sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradalshrepps



