Við myndun meirihlutasamstarfs í Kópavogi í byrjun líðandi kjörtímabils sóttist Framsóknarflokkurinn eftir formennsku í þeim nefndum er snúa að velferð og fjölskyldumálum. Í forsvari fyrir velferðarráð hefur flokkurinn beitt sér fyrir framförum í þeim á köflum flóknu viðfangsefnum sem þar búa undir. Nægir þar að nefna málefni fatlaðs fólks, eldra fólks og velferð fólks af erlendu bergi brotins. Velferðarmálin eru sá málaflokkur sem mest hefur verið bætt í af fjárveitingum á kjörtímabilinu sem gagnast hefur velferðarþjónustu bæjarins til að vaxa og dafna.

Kópavogur er mikill íþróttabær þar sem starfa mörg öflug íþróttafélög. Í gegnum tíðina hefur verið vel staðið að uppbyggingu íþróttamannvirkja í bænum. Á því varð ekki breyting á líðandi kjörtímabili. Á félagssvæði Breiðabliks var tekinn í notkun nýr knattspyrnuvöllur í fullri stærð, upplýstur með gervigrasi. Innan skamms hefjast framkvæmdir á félagssvæði hestamannafélagsins Spretts þar sem rísa mun svokallað félagshesthús auk kennsluaðstöðu. Eitt af markmiðum þeirrar uppbyggingar er að lækka þröskuldinn fyrir ungmenni inn í greinina. Einnig að efla samstarf við grunn- og framhaldsskóla. Hér er um að ræða mikið framfaraskref fyrir hestamennskuna í Kópavogi sem lengi hefur verið beðið eftir.

Umbætur þær sem áttu sér stað í leikskólamálum í Kópavogi á kjörtímabilinu hafa skilað miklum árangri og vakið þjóðarathygli. Leikskólakerfið var fyrir breytinguna að nálgast að verða óstarfhæft. Mönnunarvandi var mikill og álag á starfsmenn gríðarlegt. Þjónusturof var nánast daglegt brauð og reglulega féllu niður dagar í þjónustunni vegna manneklu. Breytinga var þörf og með víðtæku samráði var kerfinu breytt með það fyrir augum að bæta starfsumhverfið á leikskólunum. Það tókst með því sem kallað hefur verið Kópavogsmódelið. Þjónusturof heyrir nú sögunni til, mönnun á skólana gengur miklu betur, gæði starfsins hafa aukist og í gegnum hvata sem settir voru upp geta nú 30% barna notið leikskóladvalar án þess að borga fyrir hana eina krónu. Nýlega bættist við enn ein fjöðrin í hatt Kópavogsmódelsins þegar í ljós kom að unnt verður að taka inn 12 mánaða gömul börn á leikskólana við upphaf næsta skólaárs í haust. Þetta er fáheyrð staða meðal stærri sveitarfélaga og mikið fagnaðarefni.

Með áherslum sínum á líðandi kjörtímabili hefur Framsókn sýnt í verki að hún er flokkur velferðar og heimila. Kópavogur er vel rekið sveitarfélag sem sinnir þjónustu sinni við íbúa af kostgæfni. Framsókn hefur lengst af í gegnum tíðina setið í meirihluta bæjarstjórnar Kópavogs og á því mikinn þátt í velgengni bæjarfélagsins. Í kosningunum 16. maí gefst kjósendum kærkomið tækifæri til þess að viðhalda þessari þróun með því að velja x-B á kjörseðlinum.


Höfundur er formaður bæjarráðs í Kópavogi.

Höfundur: Orri Hlöðversson

Greinin birtist fyrst í Morgunblaðinu 1.maí 2026