Kynning á frambjóðanda: Eydís Inga Sigurjónsdóttir
Fólkið

Ég heiti Eydís Inga Sigurjónsdóttir fædd 1987, og býð mig fram til sveitarstjórnar á B-lista Framsóknar og óháðra á Skagaströnd. Ég ólst upp á Skagaströnd, var í leikskólanum og gekk í grunnskólann. Ég sem sagt lék mér, lærði og þroskaðist í þorpinu okkar sem mér hefur ætíð þótt mjög vænt um. Hér er mitt „heima.“ Eftir grunnskóla hélt ég áfram í námi og fór í Menntaskólann á Akureyri. Þar kláraði ég stúdentspróf af félagsfræðibraut 2006. Þaðan lá leiðin upp í Háskólann á Akureyri þar sem ég lauk B.Sc. prófi í hjúkrun árið 2011. Ég ætlaði að verða lögfræðingur en eftir að ég hóf starfsferil minn 15 ára gömul á Sæborg (sem þá var dvalarheimili en er nú alfarið orðið að hjúkrunarheimili) kynntist ég umönnun og eftir að hafa starfað við það á sumrin átti hjúkrun hug minn allann.
Ég hef alla tíð verið mjög félagslega virk og því fór það svo að meðfram skólagöngunni í HA var ég í stjórn nemendafélagsins og síðar formaður Eirar félags hjúkrunarfræðinema í HA.
Þau verkefni voru mjög góður og þroskandi skóli á sviði félagsmála, réttindabaráttu og ákveðinnar samfélagslegrar sýnar.
Sem hjúkrunarfræðingur starfaði ég á Hjartadeildinni á Landspítalanum og samhliða starfi þar fór ég á mörg fjölbreytileg námskeið og sinnti verkefnum á því sviði bæði innan land og erlendis. Á Hjartadeildinni var ég vaktstjóri, klínískur kennari og í endurlífgunarteymi spítalans auk þess tók ég að mér ýmis verkefni til að bæta verkferla. Bæði starfið og verkefnin tengd þeim voru oft flókin og erfið en alltaf þroskandi.

Ég er gift Davíð Birki Tryggvasyni og saman eigum við tvær dætur. Hann er lærður lögfærðingur og þegar við hófum sambúð okkar og stofnuðum heimili í Kópavogi var það ekki á döfinni að flytja út á land. Það urðu hins vegar vatnaskil í lífi fjölskyldunnar árið 2020 þegar COVID geisaði. Hann hafði fengið starf á greiðslustofu VMST á Skagaströnd árið áður og líkaði svo vel að ekki var aftur snúið. Við fluttum norður í minn kæra heimabæ þar sem ræturnar lágu. Ég fékk starf sem deildarstjóri á Sæborg og var síðan ráðin hjúkrunarforstjóri í september 2021. Meðfram störfum mínum á Sæborg tók ég viðbótardiplómu í opinberri stjórnsýslu með áherslu á heilbrigðisvísindi sem ég lauk í júní 2024. Í frítíma mínum er ég vettvangsliði því sjúkrabíll er ekki á Skagaströnd lengur. Vegna þessa var ég í fyrsta skipti skráð í björgunarsveit en það var langþráður draumur.
Þessi sex ár sem ég hef starfað á Sæborg hafa verið miklir umbrotatímar. Bæði vegna framkvæmda við eignina og fjárhagstöðu í rekstri Sæborgar sem endaði með því að sveitarfélagið ákvað að skila rekstri hjúkrunarheimilisins til ríkisins. Þegar svo HSN tók við 1. maí 2025 var ég ráðin hjá nýjum rekstraraðila.
Ég er glöð yfir því að vera komin heim og geta veitt börnum mínum tækifæri til að njóta góðrar æsku eins og ég var svo heppin að njóta hér á Skagaströnd. Eftir að ég flutti heim hef ég fengið innsýn inn í hluta af rekstri sveitarfélagsins og tekið þar þátt í fjárhagsáætlunargerð við að stýra einni af stofnunum þess. Sem íbúi er margt sem finn að er mjög vel gert, svo er annað sem ég myndi vilja sjá betra. Ég hef mikinn áhuga á að taka þátt í mörkun stefnu Skagastrandar til framtíðar. Þar tel ég að reynsla mín og hæfileikar geti hjálpað. Ég hef mikinn áhuga á að vinna fyrir samfélagið mitt því hér viljum við fjölskyldan vera til framtíðar.

Ég býð mig fram til sveitarstjórnar á Skagaströnd á B-lista Framsóknar og óháðra. Eins og allir vita sem hafa tekið þátt í framboðum eru iðulega flóknar og stundum tilviljanakenndar leiðir sem liggja inn á slíka lista. Mín leið var þannig að ég fann fyrir þörf til að leggja mitt að mörkum fyrir mitt samfélag og þegar í ljós kom að framboð á Skagaströnd yrðu að einhverju leyti tengd við stjórnmálaflokka þá fór ég að lesa stefnuskrár og átta mig á hvað hver þeirra stæði fyrir og við hvað mín sjónarmið rímuðu best. Ég fann góða samsvörun í málefnaskrá Framsóknar og þegar ,,var komið að máli við mig“ um að leiða þann lista þá sló ég til. Og já við erum á sitt hvorum listanum við Davíð minn og okkur finnst það bara allt í lagi. Okkur semur mjög vel þótt við séum ekki með nákvæmlega sömu áherslur í stjórnmálum og látum það ekki trufla heimilishald okkar og sambúð. Það er löngu liðin tíð að heilu fjölskyldurnar væru markaðar undir ákveðna stjórnmálaflokka eða stæðu í innbyrðis illindum ella. Nú velur hver og einn á sjálfstæðan hátt hvað hentar best og kýs samkvæmt því.
Ég er tilbúin að leggja mitt að mörkum fyrir samfélagið okkar og þigg mjög gjarnan stuðning ykkar til að svo megi verða. X- við B!



