Kynning á frambjóðanda: Halldór Bjarni Maríasson
Fólkið

Halldór Bjarni Maríasson skipar 13. sæti framboðslista Framsóknar í Hveragerði fyrir komandi kosningar. Hann er nýlega fluttur í Hveragerði og kemur inn með ferska sýn, kraft og metnað til að taka þátt í að móta samfélagið okkar.
Við bjóðum Halldór hjartanlega velkomin í hópinn.
"Ég heiti Halldór Bjarni Maríasson. Ég er fæddur á Ísafirði árið 1952 og bjó þar fyrstu 22 árin. Ég kynntist konunni minni þegar hún kom vestur á Húsmæðraskólann og flutti ég með henni norður í Húnavatnssýslu þar sem við hófum búskap á hennar æskuheimili og bjuggum þar í 30 ár.
Við eigum 4 syni, 12 barnabörn og 2 langafabörn. Ég stundaði skólaakstur og ýmsa aðra vinnu með búskapnum. Árið 2004 fluttum við að Borg í Grímsnesi þar sem við fengum bæði vinnu hjá sveitarfélaginu, þar vorum við í 12 ár. Síðustu 8 ár bjuggum við á Blönduósi þar til á síðasta ári er við fluttum hingað í Hveragerði því hér höldum við að sé gott að verða gamall. Ég hef starfað nokkuð í félagsmálum, verið í karlakórnum norðan og sunnan heiða, kirkjukórum, Veiðifélagi Blöndu og Svartá og fl."


