Kynning á frambjóðanda: Margrét S. Stefánsdóttir
Fólkið

Margrét S. Stefánsdóttir skipar 10. sæti á lista Framsóknar í Hveragerði. Hún býr yfir víðtækri reynslu af tónlistar- og fræðslustarfi, hefur gegnt leiðtogahlutverkum og þekkir vel til samfélagsins í Hveragerði.
Það er virkilega ánægjulegt að hafa Margréti með okkur í þeim verkefnum sem framundan eru, það er svo sannarlega alltaf gaman með hana sér við hlið
"Ég heiti Margrét Sigurlaug Stefánsdóttir og er fædd og uppalin í Skagafirði. Fór til Reykjavíkur 15 ára í Menntaskólann við Hamrahlíð og Tónlistarskólann í Reykjavík. Settist að í Ölfusinu með eiginmanni mínum, Ólafi H.Einarssyni. Fyrst á Ingólfshvoli í fimm ár en fluttum síðan að Hvoli í Ölfusi og bjuggum þar í 25 ár. Í sveitasælunni eignuðumst við þrjú börn og eigum fimm dásamlega ömmu og afa drengi. Börnin mín fóru í leik og grunnskóla í Hveragerði og Hveragerði varð dálítið ”minn” staður. Sem kom á daginn því við fluttum svo í blómabæinn fyrir tæpum tveimur árum.
Ég starfa með tónlistarkennari og deildarstjóri við Tónlistarskóla Árnesinga og stjórna Söngsveit Hveragerðis. Ég hef alla tíð starfað við tónlist. Söng og píanókennari, organisti og stjórnað ýmsum kórum í gegnum árin.
Hveragerði er mér mjög kær. Hér á ég góða vini og þekki samfélagið vel. Það eru forréttindi að búa hér í einstakri náttúrfegurð og friðsæld. Áhugamál mín eru fólkið mitt, garðyrkja og gróður, göngur, útivist, músik og menning, og
síðast en ekki síst samvera með góðum vinum.
Ég ákvað að vera með á lista Framsóknar því mig langar að gera góðan bæ betri og leggja mitt af mörkum. Framsókn í Hveragerði hefur á síðasta kjörtímabili unnið vel og markvisst að brýnum verkefnum á innviðum bæjarins. Svo sem grunnskólanum,
leikskólum, íþróttamannvirkjum og fráveitumálum.
Ég hlakka til að starfa með þessu öfluga fólki sem á listanum eru, og veit að Framsókn í Hveragerði situr ekki við orðin tóm heldur lætur verkin tala.
Áfram Framsókn!"


