Kynning á frambjóðanda: Páll Sigurðsson

Fólkið

Páll Sigurðursson skipar 9. sæti á lista Framsóknar í Hveragerði í komandi sveitastjórnarkosningum. Páll er nýlega fluttur í bæjarfélagið en er sannarlega kunnugur svæðinu. Það er mjög ánægjulegt að bjóða Pál velkominn og erum þakklát fyrir að fá að njóta hans krafta.

"Ég heiti Páll Sigurðsson og er í 9. sæti á lista Framsóknar í Hveragerði fyrir þessar bæjarstjórnarkosningar. Sjálfur er ég úr Sandvíkurhreppnum, og flutti í fyrrasumar þaðan hingað í Hveragerði … og er enn að taka upp úr síðustu kössunum eftir flutningana.

Ég kynntist hér konu búsettri í Hveragerði, sem reyndar er líka aðflutt. Samtals eigum við tvö börn og senn þrjú. Þó að ég sé nýkominn hingað er ég ekki ókunnur Hveragerði. Eftir að ég kom heim frá námi í útlöndum vann ég í rúm 6 ár á Garðyrkjuskólanum á Reykjum. Hann er vissulega í Ölfusi, en kannski í Hveragerði í anda. Öll þessi ár gat ég að morgni séð að heiman úr Sandvíkurhreppnum hvernig þá viðraði í Hveragerði, ef það á annað borð sást á milli bæja fyrir skýjum eða þoku. Eftir að ég lauk störfum á Reykjum hef ég verið sérfræðingur hjá Skógræktinni og svo Landi og skógi með skrifstofu á Selfossi.

Það eru mörg hugðarefni sem ég á og ég næ að sinna fáeinum áhugamálum. Skepnur og búskapur, bækur, músík, vinnustaðagrín. Svo hef ég gaman af félagsstörfum, er í stjórn stéttarfélagsins FÍN og var virkur í starfi Framsóknarflokksins í Árborg þangað til ég flutti hingað. Og líklega er það ein ástæða þess að ég enda hér á framboðslista.

Mér líst vel á listann okkar Framsóknarfólks hér, það er gott fólk í efstu sætum sem er tilbúið að vinna samfélaginu og bæjarfélaginu mikið gagn. Sjálfur vil ég gjarnan að sveitarfélagið veiti góða þjónustu og sinni sínum hlutverkum vel og af hagsýni, og að samfélagið dafni, íbúum öllum til sem mestra heilla.

Ég hef óbilandi trú á vilja og getu þeirra sem skipa lista Framsóknar til að vinna að því. Vonandi getur mín reynsla og kunnátta einnig nýst"