Kynning á frambjóðanda: Sigurbjörn Rafn Úlfarsson

Kynning á frambjóðanda - 1 sæti.
Ég heiti Sigurbjörn Rafn Úlfarsson. Ég er oddviti Framsóknar og óháðra á Ströndum og bý á Hólmavík ásamt eiginkonu minni, Halldóru Jónsdóttur. Ég hef víðtæka reynslu úr atvinnulífi, rekstri og opinberum störfum og starfa í dag sem framkvæmdastjóri. Ég hef gegnt stjórnunarhlutverkum í sjávarútvegi, iðnaði og eigin rekstri, auk þess að hafa setið í sveitarstjórn og ýmsum nefndum og stjórnum.

Ég er í námi í viðskiptalögfræði og er með BA-próf í heimspeki, auk meistararéttinda í vélvirkjun. Þessi fjölbreytta menntun og reynsla hefur nýst mér vel í krefjandi verkefnum.

Ég legg áherslu á ábyrgð, heiðarleika og skýra sýn um uppbyggingu samfélagsins. Ég vil vinna með fólki að raunhæfum lausnum sem styrkja atvinnulíf og þjónustu. Í frítíma hef ég gaman af útivist, tónlist og fjölskyldunni.

Candidate Introduction - 1st Place.

My name is Sigurbjörn Rafn Úlfarsson. I am the leader of the Progressive and Independent in Strandir and live in Hólmavík with my wife, Halldóra Jónsdóttir. I have extensive experience in business, operations and public service and currently work as a managing director. I have held management roles in the fisheries sector, industry and my own operations, in addition to serving on the local government and various committees and boards.

I am studying business law and have a BA in philosophy, as well as a master's degree in mechanical engineering. This diverse education and experience has served me well in challenging projects.

I emphasize responsibility, honesty and a clear vision of the development of society. I want to work with people on practical solutions that strengthen business and services. In my free time, I enjoy the outdoors, music and my family.