Kynning á frambjóðanda: Silja Dagrún Júlíusdóttir
Fréttir

Kynning á frambjóðanda - 6.sæti
Ég heiti Silja Dagrún Júlíusdóttir og er að verða 31 árs.
Ég hef búið á nokkrum stöðum í gegnum árin, Akureyri, Reykjavík í smá stund, Grundarfirði og Þorlákshöfn. Fór í Grunnskóla á Hólmavík, flutti í burtu í nokkur ár og kláraði síðan grunnskóla ferilinn á Hólmavík. Ég flutti aftur til Hólmavíkur sem ung kona og hef búið hérna í nokkur ár eftir að hafa prófað að búa annarstaðar. Mér hefur alltaf liðið best á Hólmavík og þykir mjög vænt um samfélagið.
Mig langar til að leggja mitt fram til að styrkja staðinn vegna þess hve mikilvægur hann er fyrir mér.
Ég er einhleyp og barnlaus.
Ég vinn sem starfsmaður í Íþróttamiðstöðinni á Hólmavík. Mér þykir virkilega skemmtilegt að vinna í afgreiðslu og sem sundlaugar vörður. Starfsmenn íþróttamiðstöðvarinnar sjá einnig um tjaldsvæðið, sem veitir frábær tækifæri til að hitta mikið af yndislegu og áhugaverðu fólki.
Áhugamálin mín eru listir, sérstaklega mála og teikna, en ég hef gaman að allskonar föndri. Einnig finnst mér gaman að lesa og spila allskonar borðspil.
Ég brenn fyrir:
Félagsmálum og félagslífi ungmenna á svæðinu.
Umhverfismálum.
Fjölbreyttum atvinnumöguleikum
Félags- og íþróttastarfi fyrir börn og ungmenni.
Candidate Presentation - 6th Place
My name is Silja Dagrún Júlíusdóttir and I am turning 31.
I have lived in several places over the years, Akureyri, Reykjavík for a while, Grundarfjörður and Þorlákshöfn. I went to primary school in Hólmavík, moved away for a few years and then finished my primary school career in Hólmavík. I moved back to Hólmavík as a young woman and have lived here for several years after trying to live elsewhere. I have always felt at home in Hólmavík and really care about the community.
I would like to do my part to support the place because it is so important to me.
I am single and childless.
I work as an employee at the Sports Center in Hólmavík. I really enjoy working in the reception and as a pool guard. The employees of the sports center also look after the campsite, which provides a great opportunity to meet lots of lovely and interesting people.
My hobbies are art, especially painting and drawing, but I enjoy all kinds of crafts. I also enjoy reading and playing all kinds of board games.
I am passionate about:
Social issues and the social life of young people in the area.
Environmental issues.
Diverse job opportunities
Social and sports activities for children and young people.


