„Mikil sóknarfæri við að auka gæði menntunar“
Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra, segist fagna nýsamþykktum lögum Alþingis um nýja stofnun í skólakerfinu, Miðstöð menntunar og skólaþjónustu. Henni er ætlað að vera ný þjónustu- og þekkingarstofnun sem starfi í þágu barna og ungmenna á sviði menntamála. Miðstöð menntunar og skólaþjónustu mun þjónusta leik-, grunn- og framhaldsskóla um land allt með áherslu á gæði menntunar og skólaþjónustu.
„Ný Miðstöð menntunar og skólaþjónustu er fagleg þekkingarmiðstöð og leiðtogi þegar kemur að gæðum menntunar og farsældar barna í skólum. Hún veitir stuðning við verkefni skóla sem krefjast sérhæfðrar þekkingar í stað þess að þau séu leyst í hverjum skóla fyrir sig. Í henni felast mikil sóknarfæri við að auka gæði menntunar, samræma og deila þekkingunni,“ segir Ásmundur Einar Daðason, mennta- og barnamálaráðherra.
Miðstöð menntunar og skólaþjónustu markar stórt skref við eflingu menntunar og innleiðingu menntastefnu stjórnvalda til ársins 2030. Í víðtæku samráði um framtíðarskipan skólaþjónustu gegnir hún lykilhlutverki í stuðningi við skóla og framkvæmd fyrirhugaðrar heildarlöggjafar um skólaþjónustu.
Miðstöðin hefur störf 1. apríl 2024 og kemur í stað Menntamálastofnunar sem verður lögð niður. Frumvarp til laga um Miðstöðina var lagt fyrir Alþingi á haustþingi og samþykkt á föstudag. Ný störf hjá nýrri stofnun verða auglýst á næstunni.
Verkefni nýrrar stofnunar eru m.a. að:
styðja, efla og samhæfa menntun, skólaþjónustu og annað skólastarf um land allt,
sjá nemendum fyrir vönduðum og fjölbreyttum námsgögnum,
byggja upp og halda utan um aðferðir og úrræði fyrir skóla sem styðja við skólastarf, þar á meðal gæðaviðmið, verkferla, verkfæri og matstæki til greiningar námsárangurs,
styðja við innleiðingu stefnumótunar stjórnvalda á sviði menntunar og farsældar barna og ungmenna, þ.m.t. menntastefnu og aðalnámskráa.
Samhliða nýrri þjónustustofnun styrkist geta mennta- og barnamálaráðuneytisins til að afla, greina og birta upplýsingar um menntamál. Lagasetningin er liður í að efla greiningarhæfni stjórnvalda á sviði farsældar barna í heild sinni. Þá verður eftirlit og ytra mat sameinað í mennta- og barnamálaráðuneytinu, í það minnsta fyrst um sinn.
Fagna nýsamþykktum lögum um nýja stofnun í skólakerfinu, Miðstöð menntunar og skólaþjónustu, samþykkt á Alþingi. ...
Posted by Ásmundur Einar Daðason on Þriðjudagur, 12. desember 2023



