Kópavogur er vel rekið velferðarsamfélag. Bærinn hefur fyrir löngu skipað sér í hóp fremstu sveitarfélaga á landinu hvað varðar aðstöðusköpun og þjónustu við sína íbúa. Grunnskólar bæjarins eru í fremstu röð á landsvísu og leikskólakerfi er þannig rekið að það er notað sem viðmið í allri umræðu um leikskólamál á höfuðborgarsvæðinu. Áskorunum i velferðarmálum er mætt af festu og íþróttastarf bæjarins er til mikillar eftirbreytni. Menningarmálin eru rekin af miklum krafti og myndarskap.

Gerist ekki af sjálfu sér

Jafn öflugt samfélag og hér er lýst verður ekki til að sjálfu sér og í tómarúmi. Hugarfar bæjarbúa og nálgun þeirra sem leiða bæjarfélagið á hverjum tíma skiptir þar höfuðmáli. Við framsóknarmenn höfum meira og minna setið í meirihluta í bæjarstjórn frá því flokkurinn komst fyrst í þá aðstöðu árið 1962. Með skynsemina að leiðarljósi og hefur flokkurinn því leikið lykilhlutverk í þeirri þróun að breyta bænum úr frumbyggjasamfélagi í eitt öflugasta bæjarfélag á Íslandi.

Engar öfgar

Nálgun framsóknar á samfélagsmálin grundvallast af skynsemi og án dómhörku. Að forðast kreddur og öfgar í skoðunum er alltaf í forgrunni. Að vera lausnamiðuð. Á sama tíma og flokkurinn hefur skilning á mikilvægi öflugs reksturs samfélagsins þá hefur félagshyggja og samvinnuhugsjón ávallt átt sér samastað í stefnu hans. Þessi nálgun hefur skilað flokknum langt og gert hann að trúverðugum samstarfsaðila í fjölbreyttum mynstrum í meirihlutasamstarfi.

Skynsemi og yfirvegun

Við í framsókn erum ánægð með þann árangur sem vinna okkar í bæjarstjórn hefur skilað á líðandi kjörtímabili. Þar höfum við nálgast málin af yfirvegun. Við erum reiðubúin í að taka næstu skref í verkum okkar fyrir Kópavogsbúa. Fyrsta skrefið er að tryggja framsókn brautargengi og góða kosningu í vor. Merkjum við X-B í kosningunum þann 16 maí næstkomandi.

Orri Hlöðversson
Oddviti framsóknar og formaður bæjarráðs í Kópavogi

Greinin birtist fyrst 7. maí 2026 á postar.is