Nýr í kosningabaráttu

Einhverstaðar las ég að yfir 3000 manns eru í framboði á landsvísu fyrir sveitastjórnarkosningarnar um næstu helgi. Það eru töluvert margir af þessum frambjóðendum að gera þetta í fyrsta sinn og ég er einn af þeim og er reglulega spurður hvernig þetta sé allt saman. Jú, þetta er mjög skemmtilegt.
Ég er að kynnast mörgu skemmtilegu fólki og sérstaklega gaman er að mynda öfluga liðsheild með fólkinu í mínum flokki. Ég hef loksins lært hvers vegna ég hef tvö eyru og einn munn. En síðustu vikur hef ég verið duglegur að hlusta með báðum eyrum. Á milli eyrnanna situr lítill og rykugur heili sem þarf að vera rosalega fljótur að læra þessa daganna. Svo á endanum verður það munnurinn sem tekur við og stelur senunni.
Kosningabaráttan er ótrúlega áhugaverð
Síðustu vikur eru samfélagsmiðlar að fyllast af fólki sem maður varla vissi að væri til, fólki sem vanalega heilsar ekki af fyrra bragði, fólk sem hefur ekki verið æst í að gefa sig á tal við hinn eða þennan. En núna keppist það við að heilsa öllum og heimsækja sem flesta. Brosa framan í allt og alla, en sum þeirra vissi maður ekki að hefðu tennur, enda aldrei séð þau brosa áður. Allavega ekki síðustu fjögur árin. Þetta fólk er sömuleiðis allt í einu komið með rosalega mikla spjall-þörf og vilja allt um alla vita.
Áhuginn er svo mikill þessa dagana að spjallið eitt og sér dugar ekki. Heldur skrifa um hittinginn á netinu og fylla fésbókina af myndum því til sönnunar að samtalið átti sér stað. Mikill er hann kærleikurinn.
Það er auðvitað mikill heiður fyrir íbúa þegar svona flott fólk vill allt í einu kynnast þeim. Samhliða þessum áhuga á að hitta íbúa, þá mæta frambjóðendur á fundi sem þeim var boðið á, ásamt öðrum frambjóðendum og skrifa auðvitað um það statusa líka og birta myndir.
Pistlarnir
Pistlarnir eru margir skemmtilegir. Rétt í þessu las ég pistil sem heitir Að eigna sér annarra manna verk og er eftir oddvita X-D. Þar telur hann upp fullt af flottum hlutum sem hans flokkur kom í verk á kjörtímabilinu áður en X-B fékk hreinan meirihluta. Og svo sannarlega var margt gott gert, enda sást það þegar talið var upp úr kjörkössum árið 2022 hve ánægja íbúa var mikil með þáverandi sveitastjórn. En í pistlinum er talið upp margt gott sem þáverandi sveitarstjórn gerði. En einnig fjallað um verkefni sem unnin voru á síðustu fjórum árum. Athugið! Verk sem unnin voru í raun og veru, ekki verk sem talað var um að vilja fara í. En pistillinn segir að þessi góðu verk voru unnin vegna þess að núverandi sveitarstjórn tók við svo góðu búi, verkefnin voru þá ýmist hafin eða tilbúin til framkvæmdar. Sjálfstæðisflokkurinn ætlaði auðvitað að fara af stað með þessi verkefni en það án allra skuldsetninga.
Snemma í sama pistli er fjallað um að Ísland var á þessum tíma farið að rétta úr kútnum eftir fjármálakreppu, sem einhvern veginn matreiðist þannig að það sé eiginlega þáverandi sveitarstjórn að þakka. Að landslagið var að breytast í sveitarfélaginu og þá líklega á landinu öllu.
Ég er nýr í þessu og ætla ekki að draga neitt í efa sem fjallað er um í greininni. En ég veit að Framsókn gerði mjög margt gott á kjörtímabilinu og stóð við stór orð. Alveg pottþétt átti fyrri sveitarstjórn þátt í því að leggja jarðveg sem gott var að rækta í. En gamli minn, gæti verið að þú sért aðeins að reyna eigna þér annarra manna verk?
Léttleiki
Í kosningabaráttunni er oft stutt í fíflaganginn, ég hef t.d. verið að leika í myndböndum sem eru ansi langt út fyrir minn þægindaramma. Allskonar fíflagangur sem sýnir hvað við erum öll flippuð og dásamleg. Mér fannst sérstaklega góð hugmynd hjá einum flokknum þegar frambjóðendur fóru að birta barnamyndir af sér á samfélagsmiðlum, það er eitthvað svo ótrúlega eðlilegt! Þar setja þau alveg mega krúttlegar myndir af sjálfum sér, en þau eru fullorðin í dag og við myndirnar stendur; „þessi ætlar að gera sveitarfélagið svona eða hinsegin.“ Algerlega brilliant! Frábær hugmynd fyrir öll sem eru í atvinnuleit. Ég veit að næst þegar losnar starf hjá KSÍ, sem segja alltaf nei við mig, þá ætla ég að senda þeim með umsókninni mynd af mér í bleyju og skrifa: „Þessi ætlar að koma okkur á HM.“
Er ekki best að vera bara eðlilegur?
Við erum öll vonandi að bjóða okkur fram vegna þess að við viljum gera sveitarfélagið betra. Og öll vonum við að við höfum áunnið okkur traust íbúa. Mögulega með því að sýna fólki áhuga í gegnum tíðina, með því að brosa framan í fólk eða með því að segja já þegar einhver biður um smá stund í spjall. Jafnvel með því að vera dugleg og með því að vera heiðarleg. Og þá helst lengur en í þrjár vikur á fjögurra ára fresti. Við eru ekki að þessu bara fyrir flokkinn okkar, börnin eða fjölskylduna. Heldur fyrir alla íbúa á þessu risastóra svæði.
Ég stefni á að vera eins heiðarlegur og ég get í þessu ferli. Mér finnst t.d. hæpið að það verði sett rennibraut í sundlaugina á Kleppjárnsreykjum og fyrir mér er vont að stefna á að skutla barni sem býr á Kleppjárnsreykjum eða Hvanneyri heim eftir æfingar en bjóða ekki upp á sömu þjónustu fyrir barn sem býr á Mýrunum eða Bifröst. Sveitarfélagið er stútfullt af flækjustigum og hindrunum. En það er sömuleiðis fullt af tækifærum og stórkostlegu fólki. Snýst þetta ekki um að finna bara lausnir?
Við höfum allavega sýnt það í verki að Framsókn lætur verkin tala.
Setjið X við B
Jón Theodór Jónsson
Höf. skipar 5. sæti framboðs Framsóknarflokksins í sameinuðu sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradalshrepps



