Orri Hlöðversson nýr oddviti Framsóknar í Kópavogi
Í gærkvöldi var listi Framsóknar í Kópavogi fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar samþykktur einróma á fulltrúaráðsfundi. Þar var m.a. nýr oddviti Framsóknar í Kópavogi valinn, Orri Vignir Hlöðversson, forstjóri Frumherja og fyrrverandi bæjarstjóri Hveragerðis.
Eftir honum fylgja Sigrún Hulda Jónsdóttir, leikskólastjóri, í öðru sæti og Björg Baldursdóttir, grunnskólastjóri, í því þriðja. Listinn er skipaður ellefu konum og ellefu körlum.
„Það er sannur heiður að leiða lista Framsóknar í Kópavogi í komandi sveitarstjórnarkosningum. Listinn er öflugur og við erum með kröftugt fólk í hverju sæti. Við ætlum okkur stóra hluti hér í Kópavogi og ég er spenntur fyrir því að hefjast handa,“ segir Orri Hlöðversson
Listinn í heild sinni:
Orri Hlöðversson, framkvæmdastjóri
Sigrún Hulda Jónsdóttir, leikskólastjóri
Björg Baldursdóttir, grunnskólastjóri
Gunnar Sær Ragnarsson, lögfræðingur
Sverrir Kári Karlsson, verkfræðingur
Svava H Friðgeirsdóttir, skjalastjóri
Sveinn Gíslason, forstöðumaður
Heiðdís Geirsdóttir, félagsfræðingur
Haukur Thors Einarsson, sálfræðingur
Hjördís Einarsdóttir, aðst.skólameistari
Kristinn Dagur Gissurarson, viðskiptafræðingur
Hrefna Hilmisdóttir, fv. rekstrarfulltrúi
Eysteinn Þorri Björgvinsson, stuðningsfulltrúi
Sigrún Ingólfsdóttir, íþróttakennari
Sigurður H Svavarsson, rekstrarstjóri
Guðrún Viggósdóttir, fv. deildarstjóri
Páll Marís Pálsson, lögfræðingur
Baldur Þór Baldvinsson eldri borgari
Kristín Hermannsdóttir, háskólanemi og varaþingmaður
Willum Þór Þórsson, ráðherra
Helga Hauksdóttir, lögfræðingur
Birkir Jón Jónsson, bæjarfulltrúi og fyrrv. Alþingismaður



