Sjö bjóða sig fram í Norðvestur
Tvöfalt kjördæmisþing Framsóknarflokksins í Norðvesturkjördæmi verður haldið sunnudaginn 8. október 2017 á Bifröst Borgarbyggð.
Þingið hefst kl. 11:00, en skráning þingfulltrúa hefst kl. 10:00.
Til þingsins er boðað til að velja í 5 efstu sætin á framboðslista Framsóknarflokksins til alþingiskosninga þann 28. október nk..
Sjö bjóða sig fram en þau eru:
Ásmundur Einar Daðason, fyrrv. alþingism. Borgarnesi, í 1. sæti, Halla Signý Kristjánsdóttir, fjármálastjóri, Bolungarvík, í 2. sæti, Björn Ingi Ólafsson, starfsm. mjólkurs. KS, Skagafirði, í 2.-3. sæti, Lilja Sigurðardóttir, sjávarútvegsfræðingur, Patreksfirði, í 2.-3. sæti, Stefán Vagn Stefánsson, yfirlögregluþjónn, Sauðárkróki, í 3. sæti, Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir, háskólanemi, Bakkakoti Borgarbyggð, í 3.-4. sæti, Guðveig Anna Eyglóardóttir, hótelstjóri, Borgarnesi, í 3.-5. sæti.



