Starfshópur um vindorkuver skipaður

Sigrún Magnúsdóttir umhverfis- og auðlindaráðherra hefur skipað starfshóp sem fara mun yfir regluverk varðandi starfsemi vindorkuvera og framkvæmdir vegna þeirra. Greining starfshópsins mun einnig ná til löggjafar á málefnasviði atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytisins er varðar leyfisútgáfu og eftirlit með starfsemi vindorkuvera.

Áhugi fyrir starfsemi vindorkuvera hefur aukist verulega á síðustu árum og er hópnum ætlað að kanna hvort umfjöllun um þau sé nægileg í íslenskum lögum. Í starfshópnum sitja:

  • Steinunn Fjóla Sigurðardóttir, formaður, umhverfis- og auðlindaráðuneyti,

  • Herdís Helga Schopka, sérfræðingur, umhverfis- og auðlindaráðuneyti,

  • Ottó Björgvin Óskarsson, lögfræðingur, tilnefndur af Skipulagsstofnun,

  • Sveinn Þorgrímsson, sérfræðingur, tilnefndur af atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneyti,

  • Agnar Bragi Bragason, lögfræðingur, tilnefndur af Umhverfisstofnun,

  • Margrét Arnardóttir, verkefnastjóri, tilnefnd af Samorku,

  • Vigdís Ósk Häsler Sveinsdóttir, lögfræðingur, tilnefnd af Sambandi íslenskra sveitarfélaga,

  • Jóhann Ólafsson, sviðsstjóri, tilnefndur af Mannvirkjastofnun,

  • Laufey Hannesdóttir, verkfræðingur, tilnefnd af frjálsum félagasamtökum.

Starfshópnum er ætlað að skila greinargerð til ráðuneytisins um þau atriði sem starfshópurinn telur að þarfnist breytinga í viðkomandi lögum og reglugerðum eigi síðar en 1. september 2016.

Heimild: www.umhverfisraduneyti.is