Stjórnmálaályktun frá 17. Kjördæmisþingi KFSV
Kjördæmisþing Framsóknarmanna í Suðvesturkjördæmi (KFSV) haldið í Kópavogi 5. nóvember 2017 fagnar niðurstöðu kosninganna 28. október síðastliðinn. Spár gerðu flestar ráð fyrir miklu fylgistapi Framsóknarflokksins frá 2016, en með jákvæðni, samstöðu og baráttugleði að vopni tókst að snúa þeirri þróun við og halda sama þingsætafjölda og áður.
Kosningabaráttan tókst vel og gefur Framsóknarflokknum tækifæri til áframhaldandi uppbyggingar til dæmis í sveitarstjórnarkosningunum næsta vor. Þar þarf að nýta þennan meðbyr til að bjóða fram B-lista í sem flestum
sveitarfélögum í Suðvesturkjördæmi.



