Stöndum þétt saman, snúum bökum saman

Ágætu íbúar í sameinuðu sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradalshrepps! Senn líður að fyrstu kosningum til sveitarstjórnar í nýju sameinuðu sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradalshrepps. Ég tók ákvörðun um að bjóða mig fram í 3. sæti á lista Framsóknarflokksins í komandi kosningum. Ég hef verið í hreppsnefnd Skorradalshrepps til fjölda ára, svo lengi að ég man varla hvað árin eru orðin mörg. Ég hef einnig gegnt starfi oddvita síðasta kjörtímabil í Skorradal.
Framtíðin er björt
Það kunna margir að spyrja af hverju Framsókn, jú, það geri ég vegna þess að mér hefur fundist margt gott hafa gerst á síðasta kjörtímabili í Borgarbyggð, sérstaklega í uppbyggingu skóla og íþróttamannvirkja en þó er það svo að störf sveitarstjórnar verða seint óumdeild. Eitt er þó víst að það sem einum þykir óþarfi og jafnvel skaðlegt þykir öðrum vera þarft og nauðsynlegt og aldrei verður hægt að gera hluti sem öllum íbúum líkar til fullnustu.
Ég held þó að íbúar sveitarfélagsins þurfi engu að kvíða. Framtíðin er björt eftir uppbyggingu á síðasta kjörtímabili undir forystu Framsóknar. Nú er það svo að um helmingur íbúa býr í Borgarnesi og helmingurinn í dreifbýli sveitarfélagsins. Ég vil leggja höfuðáherslu á að jafna aðstöðu milli dreifbýlisins og þéttbýlisins og við þurfum að sameina allt sveitarfélagið og vera stolt íbúar þess enda ærin ástæða til.
Stærra og öflugra sveitarfélag
Á hausti sem leið var kosið um sameiningu Skorradalshrepps og Borgarbyggðar og var sameiningin samþykkt með nokkuð góðum meirihluta í báðum sveitarfélögum. Þar er um að ræða mikið framfaraskref ekki hvað síst fyrir okkur Skorrdælinga, þar sem við tilheyrum nú stærra og öflugra sveitarfélagi með alla grunnþjónustu sem Skorradalshreppur hafði ekki beinan aðgang að fyrir.
Börnin okkar hafa jafnan aðgang að öllu því sem vinir þeirra í Borgarbyggð hafa án þess að sveitarfélagið þurfi að hafa þar milligöngu um sérstök kaup á þjónustu og sama á við um eldra fólkið okkar sem hefur kannski lokið hefðbundnum störfum og á að eiga gott líf svo lengi sem heilsa leyfir. Nú í upphafi kjörtímabilsins mun þurfa að stokka saman skipulagsmál sveitarfélaganna og þar langar mig að leggja hönd á plóg.
Höldum áfram
Tækifærin eru mörg í Skorradalnum í tengslum við útivist og náttúru og vona ég að við náum að nýta þau okkur öllum til hagsbóta þar sem við þurfum að efla lýðheilsu allra, ekki síst barna og ungmenna. Þar höfum við verk að vinna til að byggja upp öflugar kynslóðir sem líður vel í eigin skinni og verða virkir þjóðfélagsþegnar í sameinuðu sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradalshrepps.
Ég er fullur eldmóðs að takast á við verkefni næsta kjörtímabils með Framsókn ef ég fæ til þess umboð ykkar kjósenda en þá verðum við líka öll að muna að setja X við B þann 16. maí.
Jón Eiríkur Einarsson
Höf. skipar 3. sæti á lista Framsóknar í sameinuðu sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradalshrepps



