Það eru forréttindi að búa í sameinuðu sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradalshrepps

Mörgum finnst ég kannski taka stórt upp í mig með þessum titli, en þessi orð eiga örugglega við mörg önnur sveitarfélög á landinu.
Hvers vegna eru það forréttindi að búa hér? Ég kom hingað haustið 2004 til að setjast á skólabekk í Bændaskólanum á Hvanneyri sem nokkrum mánuðum síðar varð að Landbúnaðarháskóla Íslands. Fljótlega eftir að ég kom fann ég það mjög sterkt að ég væri kominn HEIM og hér vildi ég vera og viti menn, ég er hér enn. Ég hef búið í báðum þeim sveitarfélögum sem eru nú að sameinast.
Hér býr gott fólk, mikill mannauður er í sveitarfélögunum, nokkuð fjölbreytt atvinnulíf og hér eru tækifæri til að auka á fjölbreytni. Borgarnes situr á einu fallegasta bæjarstæði landsins og gjöfult landbúnaðarland er í sveitarfélaginu enda er landbúnaður einn af undirstöðuatvinnuvegunum í sveitarfélögunum.
Hér er nóg af leikskólaplássum, grunnskólarnir standa vel, búið er að byggja nýjan grunnskóla á Kleppjárnsreykjum og stækkun á Leikskólanum Uglukletti er fyrirhuguð. Hér er líka menntaskóli og tveir háskólar. Það er því hægt að stunda nám í sveitarfélaginu frá leikskóla upp í doktorspróf.
Hér ræður náttúran ríkjum, þeir sem búa í þéttbýlinu þurfa ekki að fara langt til að komast í snertingu við náttúruna. Mikið er af náttúrulegum birkiskógi, ef ég man rétt þá er um fjórðungur af íslensku birkiskógunum í þessum tveimur sveitarfélögum. Einnig er töluvert af ræktuðum skógi bæði á vegum Lands og Skóga, Skógræktarfélags Borgarfjarðar og í einkaeigu.
Landslagið einkennist af fjöllum, dölum, mýrum og holtum, ám og vötnum, já, hér eru margar af bestu laxveiðiám landsins og mörg gjöful silungsvötn. Ekki má heldur gleyma Borgarfirðinum sjálfum.
Hér fæst flest af því sem fólk vantar en það er ekki til í sveitarfélaginu og það er frekar stutt á höfuðborgarsvæðið.
Stress er minna hér en á höfuðborgarsvæðinu enda er áreiti minna og fólk er í nánari tengslum við náttúruna.
Er hægt að hugsa sér betri stað til að búa á?
Framsóknarflokkurinn hefur verið við völd á líðandi kjörtímabili og hefur unnið að mörgum góðum málum, mikilli uppbyggingu á íbúðarhúsnæði, bættri aðstöðu til íþróttaiðkunar, auknu framboði á lóðum fyrir atvinnuhúsnæði og mörgu fleira.
Sjálfsagt má gera betur í ákveðnum málaflokkum og höfum við fullan hug á því að halda áfram að byggja upp og gera betur á næsta kjörtímabili. Það verður alltaf þannig að það er ekki hægt að gera öllum til hæfis, enginn er fullkominn, ekki Framsóknarflokkurinn, ekki ég og ekki þú enda væri það frekar leiðinlegt samfélag ef allir væru fullkomnir og hefðu ekki mismunandi skoðanir og áherslur. Öll erum við þó að reyna að gera okkar besta.
Fögnum fjölbreytileikanum og styðjum við öll kyn, alla aldurshópa og þá sem hafa öðruvísi þarfir en við hin.
Já, það eru sannarlega forréttindi að búa í sameinuðu sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradalshrepps.
Valdimar Reynisson
Höf. er í 8. sæti á lista Framsóknarflokksins í sameinuðu sveitarfélagi Borgarbyggðar og Skorradalshrepps


