Þetta snýst um Hafnarfjörð
Greinar

Kæru Hafnfirðingar.
Fyrir mér snúast kosningar fyrst og fremst um traust. Traust til að hlusta, taka ábyrgð, standa við orð sín og vinna af heilindum fyrir samfélagið. Það traust er ekki sjálfgefið. Það þarf að vinna sér það inn á hverjum degi.
Sem bæjarstjóri hef ég reynt að gera það með því að vera sýnilegur, aðgengilegur og í góðu samtali við ykkur. Ég vil að fólk finni að það sé hægt að leita til bæjarins, að á það sé hlustað og að við reynum af alvöru að finna lausnir. Stjórnmál eiga ekki að vera of íþyngjandi eða of flókin fyrir íbúa. Þau eiga fyrst og fremst að snúast um þjónustu, ábyrgð og betra samfélag. Þess vegna er ég þakklátur fyrir það traust sem mér hefur verið sýnt. Í könnun Maskínu þar sem spurt er um ánægju með störf bæjarstjóra kemur í ljós að 83% eru mjög, fremur eða í meðallagi ánægð með mín störf. Þessar niðurstöður gleðja mig en fyrst og fremst tek ég þeim sem hvatningu til að gera enn betur.
Framsókn í Hafnarfirði hefur lagt áherslu á skynsemi, samvinnu og raunhæfar lausnir. Við viljum halda áfram að byggja upp sterkan bæ með traustan rekstur, góða þjónustu og skýra framtíðarsýn. Við viljum öfluga skóla, fjölbreytt húsnæði, öruggar samgöngur, sterka velferð, gott umhverfi fyrir atvinnulífið og áframhaldandi kraft í íþrótta- og menningarlífi bæjarins.
Hafnarfjörður er fólkið sem býr hér og starfar. Fjölskyldurnar, börnin, unga fólkið, eldra fólkið, starfsfólkið okkar, sjálfboðaliðarnir, fyrirtækin og allir þeir sem leggja sitt af mörkum til að gera bæinn okkar lifandi og skemmtilegan.
Við höfum náð árangri en verkefnin fram undan eru mörg. Hafnarfjörður er að vaxa og því þurfum við að vanda okkur. Við þurfum að byggja upp innviði samhliða nýjum hverfum, tryggja góða þjónustu, standa vörð um reksturinn og taka ákvarðanir sem þjóna bæjarbúum til lengri tíma.
Ég býð mig fram vegna þess að ég trúi á þessa leið. Leið samvinnu, ábyrgðar og jákvæðni. Ég mun áfram leggja mig allan fram, hlusta á ykkur og vinna af krafti fyrir bæinn okkar. Því þetta snýst um Hafnarfjörð. Um ykkur. Um okkur öll.
Valdimar Víðisson
Höfundur er oddviti Framsóknar og bæjarstjóri í Hafnarfirði.



